Hér var smá metnaður í gangi með öskudagsbúning. KBB var hámarkshraði... eða alla vega skilti... svona hámarkshraða-umferðarskilti. Pabbinn á heiðurinn á hönnun og framkvæmd en mamman átti hugmyndina. Dóttirin sá svo um að sporta sig í allan dag í búningnum sem vakti athygli og kátínu.
Hér má sjá þær vinkonur Svövu og Karlottu. Svava var afskaplega falleg álfaprinsessa og Karlotta... ööö já sést ekki, er inni í búningnum sínum. En hún er afskaplega falleg heimasæta líka :)
Við BH stóðum hérna eftir í morgun þegar þær fóru, horfðum á þær út um eldhúsgluggann og emjuðum úr hlátri. Þetta var eitthvað svo súrealískt í myrkrinu hérna fyrir utan, gangandi umferðarskilti. Álfaprinsessan aumkaði sig yfir vinkonu sína skiltið og leiddi hana í skólann... því KBB sá ekkert í myrkrinu. Það var of fyndið líka. En þegar hún kom í ljósið í skólanum og svo þegar fór að birta úti þá sá hún í gegnum efnið svo þetta slapp.
Later

Ummæli