KBB hefur verið að æfa Frjálsar íþróttir frá því í haust. Hún hefur mætt þegar hún getur, lætur fiðlu og skáta ganga fyrir. En hefur verið dugleg að mæta síðan í nóvember samt. Hefur aldrei keppt fyrr en í dag. Var á Ítalíu þegar síðasta mót var.
Hún hefur verið að leggja áherslu á kúluvarp. Hlaup kannski ekki málið fyrir barn með hné eins og hún hefur. Endemis "vaxtaverkir".
Hún náði lágmarkinu til að fá að keppa á Íslandsmeistaramótinu í frjálsum fyrir 14 ára og yngri. Þannig að hún mætti fyrir hádegi til að taka þátt í kúluvarpi 14 ára stúlkna - 3 kg kúla!
Hún setti sér það markmið að kasta nógu vel til að komast í átta manna úrslit. Það voru 27 stúlkur sem tóku þátt í þessari grein. Fyrsta kastið hennar lofaði góðu, 8,05 metrar. Við BH vorum afskaplega stolt af henni því hún var meðal þeirra sem voru að kasta lengst. Eftir fyrstu umferð fóru að renna á okkur tvær grímur. Alltaf fleiri og fleiri fóru að kasta yfir 8 metra en annað kastið hennar var undir 8 metrum. Sú sem kastaði lengst kom kúlunni yfir 11 metra - virkilega vel gert.
Hún bætti sig í þriðja kastinu og kom kúlunni 8,18 metra. Við vorum að springa úr monti á hliðarlínunni. En gerðum ekki ráð fyrir endilega að hún hefði verið meðal þeirra átta sem köstuðu lengst. Hins vegar sáum við á viðbrögðum hennar þegar nöfn þeirra voru lesin upp að hún var ein þeirra :) Svo við urðum voða kát fyrir hennar hönd að hafa náð markmiði sínu.
Það urðu því mikil vonbrigði þegar í ljós kom að dómararnir höfðu gert mistök og hún var ekki á meðal þeirra átta sem komust í úrslit. Því miður. Vonbrigði hennar urðu enn meiri en ef hún hefði ekki verið lesin upp fyrst. Hún var afskaplega svekkt og sár.
Hins vegar risti það ekki djúpt því þær Birta komu hingað heim og fengu sér ís og eru að spila tölvuleiki og mér heyrist að þær skemmti sér bara ljómandi vel.
Var að kíkja á mótavefinn og sé að hún var í níunda sæti... af 27. Svo ég er afskaplega montin af stelpunni sem hefur kastað kúlu núna í rúma tvo eða þrjá mánuði. Stefnan hlýtur að vera að gera betur á næsta móti. Maður er stundum að keppa við sjálfan sig og þetta var aðeins fyrsta mótið hennar. Hefur allt að vinna, engu að tapa :)
Skilst að henni þyki sleggjukast skemmtilegast og svo á að koma sér í kringlukast líka - þetta verður spennandi :)
Hún var alla vega afskaplega flott og bar sig fagmannlega að og við BH eru afskaplega montin af stelpunni :)
Later

Ummæli