Sat í fyrradag að vinna í ritgerð hérna heima. Kveikti á beinni útsendingu frá mótmælunum á Suðurlandsbraut. Hef ekki skemmt mér svona vel lengi, þetta var allt svo súrealískt. Brjálaðist úr hlátri hérna ein heima inni í stofu þegar menn birtust í sovéskum (skilst að þeir hafi verið sovéskir) herbúningum. Kom í ljós að gaurarnir voru að dimmitera.
Hef eins og aðrir fylgst með fréttum um atburðinn í sjónvarpi og blöðum, hlustað að misviturt fólk tjá sig í útvarpinu líka. Ég er alveg hissa á því hvað lögreglan fær á sig mikla gagnrýni. Kemur í ljós að you´re damned if you do and you´re damned if you don´t - frekar erfið staða. Fólk var að missa sig yfir því hvað lögreglan væri lin við þessa karla og þegar tekið er á þeim og þeir látnir hlýða þá verður allt brjálað. Á lögreglan bara að láta fólk valta yfir sig? Ég er viss um að í mörgum tilfellum hafi lögreglumenn tekið fullharkalega á einstaka fólki, en þegar svona ástand ríkir og á meðan það varir þá er erfitt fyrir þá að greina á milli hverjir eru ógn og hverjir kannski ekki. Ef fólk vill ekki að tekið sé á því þá hefði það kannski ekki átt að garga og öskra ókvæðisorð að lögregluliðinu og ögra þeim endalaust?
Það er líka alveg frábært að heyra fólk tala um að það séu bara fjórir og fimm lögreglumenn að beita einn mann valdi - ég spyr "en ekki hvað? Á að vera maður og mann og slá hring utan um slagsmálin eins og í gamla daga á skólavellinum og klappa og hrópa SLAGUR, SLAGUR? Er ekki betra að þeir hrúgi sér á þann sem þeir ætla að taka og gera það fljótt og örugglega? Svona eins og á Kirkjusandi í gær þegar gaurinn sló lögreglumann í andlitið - Menn á staðnum bara brjál yfir að lögreglan hafi komið sínum manni til hjálpar og þeir voru bara fimm á móti einum. Er ekki bara allt í lagi að tekið sé á svona fólki? Kemur það málinu eitthvað við að gaurinn sé slappur í hnénu? Má berja eina löggu eða tvær ef maður er veikur í hnénu? Eða erum við eins og litlu börnin þegar þeim er kynntur barnasáttmáli sameinuðu þjóðanna? Þau grípa allann sinn rétt á lofti, tjá kennurum og öllum sem heyra vilja að þau hafi nú rétt á hinu og þessu en steingleyma - eða hreinlega meðataka ekki að þau beri líka skyldur. Það er skylda fólks að virða rétt annars fólks. Það er réttur lögreglumannsins að vera ekki sleginn í andlitið þó vörubílstjórar séu ósáttir.
Ég ætla ekki að lýsa því yfir að ég hafi samúð með vörubílstjórum - ég styð miklu heldur hjúkrunarfræðinga í sinni baráttu. Þær fá ekki svona mikla athygli því þær hafa lítið verið að berja lögguna og stoppa umferðina. Samt er þeirra barátta og starf miklu mikilvægara en trukkakarlanna. Það verður slæmt ef þær hætta í magni - er fegin að mín aðgerð er búin. Er orðin leið á frösum eins og "við erum að berjast fyrir alla þjóðina" Bla bla - bensínverðið verður ekki lækkað og ímyndum okkur að þeir myndu ná samningum um bensínverð - þá yrði það bara fyrir atvinnubílstjóra, t.d. þannig að þeir fengju endurgreitt bensíngjaldið sem ríkið tekur. Almenningur á aldrei eftir að græða neitt á þessum mótmælum því miður. Eina sem vitleysingar eins og ég höfum upp úr þessu öllu saman er hin besta skemmtun í að horfa á æsta fréttamenn hvetja til eggjakasts og vitleysinga ausa svívirðingum yfir lögregluþjóna.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra birtir á blogginu sínu nokkur bréf sem honum hefur borist. Þar sést vel hvers konar fólk það er sem styður svona vitleysu. Ég er alltaf jafnhissa á því hvað fólk sendir frá sér. Hvers konar fólk sendir svona haturspóst, þessi bréf lýsa best því fólki sem sendir þau. Svo mæli ég með því að fólk sem getur ekki stafsett almennilega láti lesa yfir fyrir sig textann ef það vill láta taka sig alvarlega. Ég efast reyndar um að nokkur hefði tekið það alvarlega þó textinn hefði verið rétt stafsettur.
Ég ætla að leyfa mér að vera frekar hliðholl lögreglunni þegar kemur að átökum við fólk sem ekki virðir tilmæli hennar. Ég hef grun um að lögreglumenn og konur sjái og upplifi mikið sem við hin getum ekki ímyndað okkur. Þannig að þegar þau takast á við svona hópa af æstu fólki þá viti þau að þau hafi ekki efni á að taka nokkra sénsa og taka mjúklega á fólki og klappa þeim eins og kettlingum. Ef fólk vill ekki lenda í átökum ætti það ekki að standa í skotlínunni.
Fólk hefur samt rétt til að mótmæla og lögreglan hefur ekki rétt til að beita óþarfa harðræði. Hins vegar mætti liðið á þingi alveg vakna, það er alveg merkilegt hvað það fólk þegir þunnu hljóði! Af hverju eru bílstjórar ekki á Austurvelli með læti daglega og trufla það lið frekar en að stöðva okkur hin í umferðinni og að berja á löggunni?
Vér mótmælum allir...

Ummæli
Eflaust eru margir innan lögreglunnar sem styðja kröfur bílstjóra og líka einhverjir sem gera það ekki. Þeir verða samt að sinna starfi sínu.