Vaknaði í morgun og það var aftur kominn vetur, fékk bara gæsahúð við að hugsa út. Það var sem betur fer ekki svo kalt og alls ekki mikill vindur þannig að við KEB lifðum nú alveg af hlaupandi á milli húsa með blöðin. BH hins vegar er frekar ósáttur við veðurguðina núna, enda kuldaskræfa hin mesta.
Ég var að reyna að vekja hann í morgun um kl. 8 það var ekki að ganga vel. Hann tautaði eitthvað sem ég náði ekki og hváði því og hlustaði betur. Þá sagði hann aftur frekar þvoglumæltur og syfjaður - Karlotta og Kjartan fóru út á sokkaleistunum - ég er enn að hlæja að honum, sjaldan sem maður heyrir hvað fólk er að segja þegar það er enn sofandi að tjá sig.
Í gær var ég á þeytingi fyrripart dags út um allann bæ að útrétta ýmislegt sem ég hef geymt til betri tíma. Uppgötvaði á þriðja staðnum að ég hafði gleymt veskinu mínu heima. Svona Alzheimer light getur verið dýrt þegar maður býr í Mosfellsbænum og bensínverðið er í hæstu hæðum. En það var nú meira að pirra mig tíminn sem fór í að sækja veskið aftur, þó hann hafi ekki verið langur. Það má svo velta því fyrir sér hvort ég hefði ekki bara átt að sleppa því að sækja það, því ég eyddi FULLT af peningum.
Ég ákvað þegar eldhúsið var tekið í gegn að ég ætlaði að kaupa mér nýtt matarstell. Það er brotið úr því gamla sem var bara fyrir átta. Þannig að ef það kom fólk í mat til okkar þá þurfti alltaf að ná í sparidisk fyrir einn eða fleiri. Eftir að við fengum uppþvottavélina þá þurfti líka ósjaldan að þvo djúpan disk því þeir voru fljótir að klárast. Ég hafði því ákveðið að læra af móður minni sem af mikilli nýtni var enn þá, þegar ég flutti að heiman, með brúna hundljóta (sorry mamma - við vorum búnar að ræða þetta stell oftar en einu sinni) seventies matar- og kaffistellið sem hún fékk er hún gifti sig - eða flutti að heiman. Hún er nú komin með nýtt, og líður mér miklu betur. Gamla stellið mitt var keypt ´97 í Ameríkunni, nú fór ég í Húsasmiðjuna og keypti mér bara svona byrjendasett, tvo kassa, með öllu fyrir tólf. Má ekki seinna vera, fá byrjendasett þegar maður er búinn að búa í 14 ár.
Nú er planið að lesa dálítið fyrir tímann á eftir, þó ekki væri nema vegna þess að ég keypti 4.200 kr. bók í gær til þess - best að lesa nokkrar línur til að réttlæta kaupin.
Lóan - sem klikkaði á að kveða burt snjóinn!

Ummæli