Fór og kíkti á fyrirlestra í kringum Hugvísindaþing í dag. Það var fróðlegt, alltaf gaman að hlusta á fólk sem er búið að stúdera lengi eitthvað ákveðið.
Á fimmtudaginn vorum við KEB að ræða málin og ég tjáði honum að ég yrði upptekin eftir hádegi á laugardaginn. Við yrðum þá að gera eitthvað um kvöldið bara.
KEB - Hvað ertu að fara að gera?
LBK - Æ ég ætla út í skóla og hlusta á fyrirlestra
KEB - Vei gaman - not
LBK - Ímyndaðu þér bara að þú værir að fara á svona umræður og þannig um tölvuleiki, þá kannski skilur þú betur.
KEB - Nei ég myndi bara vilja spila leikina
LBK - Æ þú veist, þú nennir að horfa á Game TV, þetta er svona svipað
KEB - Nei þar er sko verið að sýna allt það nýjasta og þannig, það er fróðlegt til að fylgjast með
LBK - já það er svona svipað og ég er að fara að gera, heyra hvað fólk er að spá.
KEB - Mamma, þú ert í sagnfræði, það er ekkert nýtt þar sko!!!!
Jebb var bara bökuð á staðnum, allt löngu liðið og maður breytir ekki fortíðinni, lítið spennandi. Ég reyndi að malda í móinn og tala um breytt hugarfar og nýjar túlkanir og tók sjálfstæðisbaráttu Íslendinga sem dæmi, rómantíkina sem er að mást af þeirri umræðu allri. Hann var ekki sannfærður.
Við erum að fara út að borða svona í tilefni af því hversu vel drengurinn stóð sig á fimmtudaginn var. Já eða af því ég nenni ekki að elda því við komum svo seint heim, annað hvort - take your pick.
Forynja

Ummæli
Annars tilkynnti ég mínum heittelskaða í morgun að hann ætti að sjá um eldamennskuna í kvöld. Er að hugsa um að kíkja aftur út á morgun og koma bara heim til að láta elda ofan í mig :O)
já þú ert sko ekkert smá leim... að vilja af sjálfdáðum hlusta á fyrirlestra endalaust :D
kv. ellen