Las litla grein í mogganum í morgun að lagið Bahama með Ingó veki sárar minningar og sé hakkað í spað víða á bloggsíðum. Hef ekki séð þau skrif en verð að viðurkenna að mér finnst lagið skemmtilegt. Bara fyndið þegar sungið er eitthvað annað en væl um ástina endalaust. Veit ekki betur en að love hurts - bad. Svo af hverju má ekki bara leka þessum tilfinningum út líka og þá á þennan hátt í stað þess að væla heil ósköp endalaust. Vona að þetta skiljist hjá mér hérna - ég er sennilega bara svona mikið kvikindi því mér finnst ekkert að þessum texta, fínn húmor.
The bitch
The bitch
Ummæli