Allir orðnir spenntir fyrir sumarfríi hérna. Fórum til Björgvins og fjölskyldu áðan og fengum að sjá myndir úr sumarfríi þeirra á þessum Danmerkur slóðum síðan 2005. Krakkarnir vilja fljúga út í fyrramálið. Ég var svo sniðug að bjóða mér í heimsókn til þeirra á matartíma. Kom með kjúklingin með okkur og skúffukökuna. Þau hins vegar höfðu planað buff í matinn og tilheyrandi þannig að í boði var hlaðborð með fullt af mat fyrir alla. Þau hefna sín einhvern tíma og bjóða sér í mat hingað við tækifæri - og eru þá bara velkomin.
Nú liggjum við hjónin á netinu að finna okkur gistingu í Köben í þrjár nætur, vona að við fáum eitthvað snyrtilegt, ódýrt og ekki of langt frá miðbænum.
tjaó
Nú liggjum við hjónin á netinu að finna okkur gistingu í Köben í þrjár nætur, vona að við fáum eitthvað snyrtilegt, ódýrt og ekki of langt frá miðbænum.
tjaó
Ummæli