Fara í aðalinnihald

Færslur

Jólin

Fólk skiptist alveg í tvo hópa með jólaundirbúninginn... þ.e. hversu snemma hann á að hefjast. Ég var alveg á móti neinu sem minnti á jólin fyrir 1. desember. Eftir að ég flutti hér í Mos, þar sem fólk er frekar duglegt að skreyta vel í kring hjá sér með ljósum og fíneríi, þá hætti ég að vera svona stíf á þessu. Satt að segja finnst mér yndislegt að sjá hvít (vil helst hvít) ljós í gluggum fólks, helst strax í byrjun nóvember. Þau mega síðan gjarna loga þar til 1. febrúar. Skammdegið hérna er svo svart, sérstaklega þegar vetur er snjóléttur (sem er bömmer útaf fyrir sig). Þannig að ég er alveg til í þessi ljós til að fá smá birtu í hversdaginn. Með jólaauglýsingar og jólaskreytingar í búðum og verslunarmiðstöðvum, þá leiði ég það hjá mér. Mér er bara alveg sama. Ég fæ þessu ekki breytt og nenni ekki að froðufella yfir þessu. Ég horfi lítið á sjónvarp og því fara auglýsingar þar mikið framhjá mér. Ég er einhvers konar snillingur í að sjá ekki auglýsingar í blöðunum þegar ég fletti F...

Ljóða fljóð

Ég er afskaplega lítil ljóðamanneskja. Sem er dáldið fyndið því ég hef samið nokkur sjálf. Þar vantar nú meira og minn alla stuðla og höfuðstafi. Ég er ekkert mikið í að ríma endilega heldur. Meira svona leti og orðafæð heldur en getuleysi held ég. Hef samt dottið í svona ljóðagerð... þau eru ekki mörg - en þau eru fleiri sem hafa verið í kollinum í mislanga tíð og svo týnst þar og gleymst. En sum hafa rifjast upp að hluta aftur við einhverjar svipaðar aðstæður og voru þegar þeim var hamrað saman. Yfirleitt finnst mér ljóð pínu háfleyg, jafnvel óskiljanleg og eitthvað svo torræð og bara leiðinleg oft. Drungaleg og niðurdrepandi á köflum. En ljóð geta verið afskaplega skemmtilegt form til að tjá tilfinningar eða atburði. Þannig að ég get ekki með góðri samvisku sagt að þau nái aldrei til mín, það er alltaf þetta eina sem smýgur í gegn. Sá þetta hjá einhverjum á fb og þetta ljóð náði einhverra hluta í gegn hjá mér - ákvað að pósta því hér til að gleyma því ekki alveg. Andri Þór...

GirlPower

Löggukarlar að væla að stelpur geti ekki, skilji ekki og kunni ekki... í sleðasportinu rúla þær hinsvegar. Það var mót síðustu helgi, bæði laugardag og sunnudag. Krýsuvíkurhlaupið - 15 km scooter og bikejöring með 2 hunda á laugardeginum. Þessir töffarar unnu þá flokka. Rósa hjólaði með tvo hunda og Olga vann Scooter-inn. Þessar tíkur þarna eru náttúrlega engum líkar... allar sex ;) Kolla landaði 2. sæti með Blanco og Hröfnu í bikejöring með tvo hunda. Laugardagurinn var svona "stelpurnar rassskelltu strákana" dagur ;) Svo kom sunnudagur... Þá tók Auður sig til með Úlfi og bakaði alla samkeppni... samtals átta "lið". Hún var heldur spæld að geta ekki farið brautina með Amyru sinni. En Úlfur hlóp þetta fyrir vinkonu sína og togaði allan tímann á meðan Auður hjólaði með. Allar þessar stelpur lögðu allt í keppnina og komu dauðar í mark, alsælar en gjörsamlega búnar. Hundarnir voru sáttir, en hefðu hlaupið lengra :) Þær voru líka mörgum mínútum...

Skype

Ég tala ekki við marga á Skype og er ekki með marga á Skype reyndar. Var með fullt af liði á MSN sem gott var að grípa í að henda á spurningu eða eitthvað þegar hentaði. En facebook hefur virkað fínt líka, þar eru "allir" meira og minna. Hins vegar nota ég skype daglega engu að síður. Við BH höfum alltaf haft, fyrst MSN, og núna Skype opið og spjöllum þar saman daglega og oft á dag. Mismikið en alltaf eitthvað. Við hringjumst sjaldan, þetta er samskiptamátinn. Því yfirleitt vantar ekkert svar í hvelli - eða við sitjum við tölvurnar anyways og þá fær maður svar strax. Þannig að ég spái lítið í hvað ég skrifa á skype... ég bara skrifa... en einstaka sinnum hef ég verið að spjalla við einhvern annan en eiginmanninn... og þá gerist þetta : Lóa Björk Kjartansdóttir: darling Lóa Björk Kjartansdóttir: verður þú heima fyrir kl. 18 Lóa Björk Kjartansdóttir: eða kemur þú beint til móður þinnar Guðmundur Þór Pétursson: hahaha, má ég koma með á eftir :) Lóa Björk Kjartansdóttir...

Kisi litli

Sonurinn, þessi sem varð lögráða fyrr í mánuðinum, hefur verið í húsi föðurbróður síns í viku núna. Hann er að húspassa. Á miðvikudaginn var hann einn heima þegar amma hans kom inn og hann svona kom á móti henni og... KEB: amma... á Davíð kisu ? Amma: NEI af hverju ? KEB: Af því ég fór fram í eldhús og þar var köttur upp á borði, allt í einu kominn köttur inn. Amma: Hentu honum út... og svo ætlaði hún með látum að drífa kvikindið út þegar sonarsonurinn tók kisa blíðlega í fangið og fór með hann í þvottahúsið og lagði hann niður. Opnaði hurðina og svona... "kisi minn, farðu út karlinn" og ýtti rólega á eftir honum til að kisi vissi að hann ætti að hypja sig. Af hverju sonur minn setti köttinn ekki bara niður fyrir UTAN þröskuldinn veit ég ekki. Og ég VEIT ALLS EKKI hvernig honum datt í hug að þau heiðurshjón í A6 ættu kött. Og ef þau ættu kött hvernig hefði hann farið framhjá drengnum í HEILA VIKU. Og að þau hefðu bara GLEYMT að segja honum frá kisa greyinu. Því verðu...

Update

Búið ? Nei alls ekki en komið vel áleiðis - þetta kemur allt með kalda vatninu og þeir sem þekkja til hérna vita að það þarf að renna dáldið lengi áður en það verður kalt ;) Þetta fannst mér skemmtilegast, þegar BH uppgötvaði einn svartan stein á kolröngum stað. Honum fannst það minna fyndið en mér en sættist þó á að þetta væri dáldið sniðugt. Dóttirin fór hins vegar á límingunum og meikar þetta alls ekki. Ég er hreint ekki viss um að hún eigi eftir að geta sofið hreinlega vitandi af þessum "mistökum". Ég tók Indversku teppin söguna á þetta. Þegar þau eru vefuð, þessi fínu og flottu teppi, þá er alltaf laumað inn alla vega einu stk mistök. Því ekkert er fullkomið nema verk guðs. Þessa sögu heyrði ég einhvern tímann og þetta verður sagan á bakvið stéttina mína. BH var enn minna skemmt í dag þegar hann sá annan svartan stein á röngum stað í planinu, þá gat hann alls ekki hlegið lengur. Hér er svo það sem þarf að klára hratt og örugglega. Staurarnir komnir, það e...