Fara í aðalinnihald

Ljóða fljóð

Ég er afskaplega lítil ljóðamanneskja. Sem er dáldið fyndið því ég hef samið nokkur sjálf. Þar vantar nú meira og minn alla stuðla og höfuðstafi. Ég er ekkert mikið í að ríma endilega heldur. Meira svona leti og orðafæð heldur en getuleysi held ég.

Hef samt dottið í svona ljóðagerð... þau eru ekki mörg - en þau eru fleiri sem hafa verið í kollinum í mislanga tíð og svo týnst þar og gleymst. En sum hafa rifjast upp að hluta aftur við einhverjar svipaðar aðstæður og voru þegar þeim var hamrað saman.

Yfirleitt finnst mér ljóð pínu háfleyg, jafnvel óskiljanleg og eitthvað svo torræð og bara leiðinleg oft. Drungaleg og niðurdrepandi á köflum.

En ljóð geta verið afskaplega skemmtilegt form til að tjá tilfinningar eða atburði. Þannig að ég get ekki með góðri samvisku sagt að þau nái aldrei til mín, það er alltaf þetta eina sem smýgur í gegn.

Sá þetta hjá einhverjum á fb og þetta ljóð náði einhverra hluta í gegn hjá mér - ákvað að pósta því hér til að gleyma því ekki alveg.

Andri Þór Sturluson þýddi eftirfarandi ljóð eftir Yeats. Og mér finnst þetta snilldarvel þýtt yfir á okkar ástkæra og ylhýra :)

"Ætti ég glæsileg guðanna heilögu klæði
gimsteinum vafin í ljómandi litríka þræði.
Þar sem dagur og nótt væru dásamleg, unaðsleg bæði
draumvafin efninu í samhljóma, samræmdu flæði.
- Ég gæfi þér þau til að ganga á.
En fátækur enga á svoleiðis dýrindis sauma
en sæll skal ég gefa þér von mína alla og drauma.
Ég vona þú þiggir þá þjakaða, sligaða og auma
þeir hafa fleytt mér gegn ýmissa kreppuna nauma.
En gerðu það, varlega gakktu á fótum þínum;
því þú gengur á björtustu vonum. - Og draumum mínum."


Það er gaman að lesa þetta með tilþrifum og ákveðnum hrynjanda - það er ekkert alltaf auðvelt að lesa ljóð þannig að vel sé - þetta ljóð gæti ég hins vegar lesið án vandræða.

Hér er það svo á upprunalegu tungumáli höfundar:

Cloths of heaven

Had I the heavens' embroidered cloths,
Enwrought with golden and silver light,
The blue and the dim and the dark cloths
Of night and light and the half-light,
I would spread the cloths under your feet:
But I, being poor, have only my dreams;
I have spread my dreams under your feet;
Tread softly because you tread on my dreams.


Aldrei þessu vant þá finnst mér íslenska þýðingin eiginlega betri - hún alla vegur grípur mig frekar.

Bara svona hugs á laugardegi... í Skorradalnum... í góða veðrinu... 
þegar ég á að vera að gera annað... sem ég er alveg að hafa mig í :)

 Later
 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...