Fólk skiptist alveg í tvo hópa með jólaundirbúninginn... þ.e. hversu snemma hann á að hefjast. Ég var alveg á móti neinu sem minnti á jólin fyrir 1. desember. Eftir að ég flutti hér í Mos, þar sem fólk er frekar duglegt að skreyta vel í kring hjá sér með ljósum og fíneríi, þá hætti ég að vera svona stíf á þessu.
Satt að segja finnst mér yndislegt að sjá hvít (vil helst hvít) ljós í gluggum fólks, helst strax í byrjun nóvember. Þau mega síðan gjarna loga þar til 1. febrúar. Skammdegið hérna er svo svart, sérstaklega þegar vetur er snjóléttur (sem er bömmer útaf fyrir sig). Þannig að ég er alveg til í þessi ljós til að fá smá birtu í hversdaginn.
Með jólaauglýsingar og jólaskreytingar í búðum og verslunarmiðstöðvum, þá leiði ég það hjá mér. Mér er bara alveg sama. Ég fæ þessu ekki breytt og nenni ekki að froðufella yfir þessu. Ég horfi lítið á sjónvarp og því fara auglýsingar þar mikið framhjá mér. Ég er einhvers konar snillingur í að sjá ekki auglýsingar í blöðunum þegar ég fletti Fréttablaðinu og mogganum hér á morgnana og í hádeginu. Allir auglýsingabæklingar enda samdægurs í bláu tunnunni. Svo þetta pirrar mig ekki.
Núna, síðasta dag október, er ég farin að hugsa mér að baka smákökur. Og hlakka mikið til... sko að borða þær - ekki baka þær. Í fyrra opnaði ég kökubók Hagkaupa og merkti við áhugaverðar uppskriftir og lét hina fjölskyldu meðlimi gera það sama. Svo var bakað út frá því. Það gekk ljómandi vel og sumar tegundir bakaðar oftar en aðrar. Var svo sniðug að ég setti posters miða við hverja uppskrift og skrifaði hjá mér hvernig hafði tiltekist og hvort þær væru góðar eða ekki. Og eitthvað svona um tíma og aðferð og hvað mætti hugsanlega bæta ef það átti við - ofurskipulögð. Það ætti að hjálpa þetta árið því ég er hrikalg og man ekkert daginn eftir einu sinni.
Anyways - kannski verða smákökur í boði hérna fljótlega, sennilega fyrr en jólaljósin fara upp - en það verður í lok nóvember vonandi, ekki seinna :)
Later

Ummæli