Búið ?
Nei alls ekki en komið vel áleiðis - þetta kemur allt með kalda vatninu og þeir sem þekkja til hérna vita að það þarf að renna dáldið lengi áður en það verður kalt ;)
Þetta fannst mér skemmtilegast, þegar BH uppgötvaði einn svartan stein á kolröngum stað. Honum fannst það minna fyndið en mér en sættist þó á að þetta væri dáldið sniðugt. Dóttirin fór hins vegar á límingunum og meikar þetta alls ekki. Ég er hreint ekki viss um að hún eigi eftir að geta sofið hreinlega vitandi af þessum "mistökum".
Ég tók Indversku teppin söguna á þetta. Þegar þau eru vefuð, þessi fínu og flottu teppi, þá er alltaf laumað inn alla vega einu stk mistök. Því ekkert er fullkomið nema verk guðs. Þessa sögu heyrði ég einhvern tímann og þetta verður sagan á bakvið stéttina mína.
BH var enn minna skemmt í dag þegar hann sá annan svartan stein á röngum stað í planinu, þá gat hann alls ekki hlegið lengur.
Hér er svo það sem þarf að klára hratt og örugglega. Staurarnir komnir, það er afrek, hefði ekki viljað missa veðrið í frost áður en það hafðist. Nú þarf að leggja stétt og gúmmímottur og eitthvað svona pissuhorn. Loka þessu með timbri, skella tveimur hliðum í þetta og græja ruslatunnugeymslu. SÆLL þetta verður svo awesome - bylting, ekkert annað. Þokkalega sem loðbolta kvikindin eiga eftir að hafa það gott þarna :)
Ég hlakka svo mikið til þegar þetta verður lokað gerði og ruslatunnurnar komnar á sinn stað. Held að nágrannarnir verði fegnir líka þegar þetta verður búið. Við erum ekki búin að vera vinsælustu og snyrtilegustu nágrannarnir síðustu tvo mánuði. En þeir hafa verið afskaplega skilningsríkir og almennilegir - því það eru þau öll sömul alltaf. Held að við séum afskaplega rík að því leyti - við eigum góða nágranna og það er mikils virði.
Later

Ummæli