Langar að pósta þessum reglum karlmanna hér í tilefni dagsins - ég hló mikið þegar ég las þetta og best fannst mér samt að hafa "only Issue with #1" Gæti ekki verið meira sammála því :) Til hamingju með daginn gaurar, vona að lífið leiki við ykkur í dag. Geri sennilega lítið annað fyrir minn mann í dag annað en að vera yndislega ég eins og alltaf ;) Og ef hann er ekki sáttur þá er hann alla vega laus við mig á morgun í heila viku. Gæti hann fengið betri bóndadagsgjöf en það ? Nei ég héld ekki :) Við mæðgur höldum kátar í ítölsku alpana í fyrramálið. Stefnum á að renna okkur niður fannhvítar brekkur á sunnudagsmorguninn - og við hlökkum mikið til :) Later