Fór í mat til ma og pa á sunnudagskvöldið - alltaf gott að fá mömmumat, alltaf gott þegar einhver nennir að elda ofan í mann.
Á milli rétta dregur mamma upp bol, kvarterma, svartan, og réttir KBB. Bað hana að máta. Ma hafði keypt bolinn í Kanada á útsölu og hafði ekki getað mátað. Var of lítill þegar til kom. Svo litla drottningin var send inn í herbergi til að máta. Það gleymist stundum að litla drottningin er vaxin ömmu sinni yfir höfuð fyrir löngu og móðursystur sinni líka... það þarf ekkert að taka það fram að hún óx mér yfir höfuð fyrst - þar sem ég er lægst. Vil koma þvi að, að ég er algjörlega i meðalhæð samt.
KBB komst ekki í bolinn, svo nú var SBK spurð hvort hún vildi eiga hann. Hún eitthvað efaðist um að komast í hann fyrst hann passaði ekki á litlu (ekki svo litlu) dömuna. Það stóð heima, hún komst ekki i hann heldur.
Þá var hlunkurinn einn eftir og fékk hún svarta bolinn með kvartermarnar í hendurnar. Send af stað í "mátunarherbergi" til að prófa. Kom sigri hrósandi tilbaka og lét þau orð falla að stundum væri bara fínt að vera dvergurinn í fjölskyldunni - stundum hægt að græða á því, annað en brandara um litla skó og að ná ekki upp í efstu hillur í skápunum ;)
Fékk að taka bolinn með mér heim og er viss um að ég geti notað hann mikið :)
Later

Ummæli