Fara í aðalinnihald

Færslur

Tvöföld í roðinu

Jæja þá er það staðfest. Hér býr ungur drengur sem fékk inngöngu í MR. Fengum að vita það í dag. Vorum enn fyrir vestan þegar hann fékk símtal frá Agnari vini sínum. Hann spurði hvort KEB hefði komist inn, Agnar flaug að sjálfsögðu inn. Við vorum ofurspennt að vita... en urðum að bíða þar til við kæmum heim. Við lögðum af stað kl. 12:30 og ég vildi að BH gæfi í og að ferðin tæki ekki meira en tvo tíma í Mos. Við komum heim klukkan að ganga níu... til að gera langa sögu stutta þá erum við alsæl að vera þó komin heim í dag. Það er Olgu og Halla að þakka og verður það seint fullþakkað, en við komum til með að gera okkar besta :o) Ferð vestur í næstu viku til að koma bílnum okkar heim líka - það sem hægt er að lenda í ævintýrum. Þegar fólk ákveður að leysa málin og gera það besta úr hlutunum þá gengur þetta allt saman upp. Það hjálpar líka að eiga góða vini sem eru ekki allt of stressaðir og eru tilbúnir í smá fórnir fyrir strandaglópa! Við erum þreytt en alsæl komin heim eftir fríið. Á ef...

Sól og sumar

Greinilegt að sá sem yfir mér vakir hefur vitað hvað hann var að gera þegar ég klúðraði sumarfrísdagskránni þarna í lok apríl. Ætlaði í sumarfrí um miðjan júlí og klúðraði bókuninni um mánuð í fljótfærni. BH tók sem betur fer eftir því að staðfestingin sagði júní en ekki júlí. Þannig að við misstum ekki af húsinu í einhverju meðvitundarleysi. Hér er búið að vera svo gott að vera og góður félagsskapur. Sól á hverjum einasta degi alla vikuna. Í fyrsta sinn í dag sést ský á himni en ekki nóg til að pirra neinn. Spánn hvað ? Hér eru hvítar strendur, sól... smá íslenskt logn, fer heldur hratt yfir á köflum og hitinn ekki kannski í hámarki. En við víkingarnir og valkyrjurnar erum ekki að láta svoleiðis smámuni á okkur fá. Öll orðin útitekin komin með lit á kroppinn. Pollurinn stendur alveg fyrir sínu og hefur verið prófaður oftar en einu sinni. Sumarhús í Reykjafirði er toppurinn á tilverunni. Hér er svo gott að vera að m.a.s. unglingurinn vill flytja hingað. Öllum líður súper vel eins og al...

On the road

KBB var eitthvað að dissa bróður sinn og hafði efasemdir um að foreldrarnir myndu höndla tónlistarval hans í bílinn. Þá kom þetta samtal: KEB: Já einmitt... ég hlusta á dauðrokk og er EMO og sker mig... sérðu ekki ? LBK: Kjartan minn er eitthvað sem þú þarft að segja okkur sonur ? KEB: Já ég er líka hommi ! Nú liggur mamman dauðrotuð og pabbinn slær hana ítrekað í andlitið... með ilmsalt við nefið á henni og ekkert virkar ! Later

Einu sinni skáti...

Til hamingju með daginn Íslendingar. Vona að allir séu að njóta hans jafnvel og ég. Vaknaði 5:30 í morgun til að eiga laaaangan og góðan dag. Very busy today og búin að áorka miklu og á slatta eftir ennþá. Gaf mér samt tíma til að sjá skrúðgönguna hér í Mos. Skyldumæting því heimasætan, einn af duglegu skátum landsins, er fánaberi nú eins og áður. Ég bakka ekki með það, hún er klárlega fallegasti fánaberi Íslands, ég er gjörsamlega hlutlaus að sjálfsögðu. Tók fullt af myndum og dreif mig svo heim til að klára það sem er á ToDo listanum fyrir klukkan fimm. Eins gott að það takist. Drengirnir og hundarnir skelltu sér á Seltjarnarnesið. Hundgreyin í fullri vinnu á Þjóðhátíðardaginn. Draga vagninn fína ásamt fleiri loðboltum og bjóða krökkum far smá spotta. Ánægð með fólkið á Seltjarnarnesi að gera hunda og hundasport sýnilegt á meðan önnur sveitafélög (og DV) keppast við að agnúast út í þessi grey og magna upp allt sem miður fer. Hér í Mos hefur enginn amast við hundum á 17. júní eða öðru...

Penelopa prinsessa

Eru ekki örugglega partý og veisluhöld framundan hjá öllum sem ég þekki... og mér boðið ? Var að endurheimta heilan fataskáp af glötuðum fötum. Það er ekkert smá gaman :o) Og allt föt sem eru klassík (í mínum huga alla vega) og í fínu deildinni. Búin að losa mig við allt hitt draslið fyrir löngu. Fór í brúðkaup í dag hjá fallegustu brúðhjónum dagsins - svo gaman í brúðkaupum. Svo fallegt fólk alltaf og glæsilegt sem er að gifta sig. Er alla vikuna og jafnvel lengur búin að velta því fyrir mér í hverju ég ætti eiginlega að vera. Mjög dæmigerð kona. Á bara EKKERT til að vera í. Passa ekki í neitt af fínu fötunum mínum lengur. þrjátíu mínútum fyrir herlegheitin og eftir sturtuna réðist ég loks í fataskápinn. Andaði djúpt þrisvar sinnum og opnaði svo úttroðinn skápinn af ENGU. Reif út það sem ég gæti hugsað mér... líka það sem er orðið of lítið á mig síðustu tvö árin. Þegar rúmið var orðið fullt af fötum fór ég að hlæja og náði mér í myndavél. Rúmið var fullt af engu sem ég átti til að ver...

fu**ing fabulous

Þrjátíuogátt ár að baki og ég ennþá svona hrikalega hress og gordjöss - hvað gæti það verið betra. Vaknaði í morgun með frumburðinum kl. 5:30 og við röltum með blöðin í lúgurnar hjá nágrönnum okkar. Verulega hressandi. Það sem við tókum helst eftir, fyrir utan kalt haustloftið, var Esjan. Hún var ekki hvít niður í miðjar hlíðar, nei... hún var alhvít :o) Okkur fannst þetta bara svalt ! Ég ætla að klára viku sex í skokkinu mínu á eftir - það verður áfangi :o) Svo verður farið á línuskauta í kvöld. Ég heimtaði afmælisís eftir skautana, maður verður að notfæra sér það að eiga daginn. Þrátt fyrir mikinn dugnað í hollustunni þessa viku verður sukkað í dag. Kanilsnúðar aLa Lilja um morguninn, kaka í kvöld eftir matinn og svo ís eftir skautana. Nett verið að bæta sér upp sykurtapið. Venjan er að eyða deginum í sumarblómaleiðangur og að koma þeim niður í garðinum. Held bara að það bíði þar til um helgina! Later

Geeeeiiiiisp

Ahhh kominn júní :o) Sumarið formlega hafið. Við hjónin héldum upp á það með því að vakna klukkan fimm í morgun. Héldum út í góða veðrið og bárum út fyrir soninn sem er í útskriftarferð með 10. bekk Lágafellsskóla. Mbl ákvað að skella á okkur aldreifingu svona aukalega á meðan blaðburðarbarnið skemmtir sér í Skagafirði. Þetta var hressandi svona þegar við vorum komin út. En vorum ansi þreytt og hefðum kosið að sofa lengur. Sérstaklega í ljósi þess að við fórum ekki að sofa fyrr en um eittleytið í nótt. Gláptum á "The Right Stuff" aftur. Jökull kom og horfði með okkur. Allt myrkvað og myndvarpinn virkjaður - svona eins og í "gamla daga" :o) Myndin eldist vel og var ekki leiðinlegt að horfa á hana aftur. En ég var alveg búin að gleyma hversu löng hún er. Tók eftir frétt fyrir einhverju síðan (man ekki alveg) þess efnis að hlerinn hjá Gus Grissom (Virgil Ivan Grissom) hefði sprungið út vegna bilana í búnaði. Hann hafði ekki opnað hlerann of snemma eins og áður var jafn...