Fara í aðalinnihald

Færslur

Ber er hver að baki...

KBB var frekar stúrinn í gær þegar hún kom heim úr skólanum. Við KEB vorum í eldhúsinu þegar hún kom inn og tjáði okkur að það hefði nú ekki verið svo gaman í dansi þennan daginn. Sko strákarnir vildu dansa við hinar stelpurnar en þegar kom að henni (geri ráð fyrir að þau hafi skipt um félaga reglulega) þá krosslögðu þeir bara hendur og neituðu pent og takk fyrir það. Hún var frekar móðguð og var ekki að skilja þetta. Ég reyndi eitthvað að gera "gott" úr þessu og spurði hvort þessir dvergar (sem enginn nær henni hærra en upp að handakrikum) væru ekki bara hræddir við hana? Henni fannst eitthvað lítið til spurninga minna koma og spurði í kvörtunartón hvort ég yrði ekki móðguð ef allir strákar neituðu að dansa við mig? Jú ég gat ekki neitað því að mér þætti það sennilega heldur leiðinlegt. Þá opnaði bróðir hennar munninn og spurði í rólegheitum "hvar búa þessir strákar?" og á meðan sló hann ákveðið (en rólega) hægri hnefa í opinn vinstri lófann LoL. Þetta var nóg til ...

Vinir og vandamenn

Það er alltaf talað um að maður eigi að vera duglegur að vera í sambandi við vini sína og vandamenn. Ég reyni nú að hafa þetta á bakvið eyrað og hitta vini reglulega og heimsækja mína nánustu líka. Því miður er ég ekki nógu dugleg og hitti vinkonurnar of sjaldan. Og þær eru lítið skárri þessar elskur því allir hafa nóg að gera. Þegar við loksins reynum að hittast, oft ekki fleiri en þrjár eða fimm, þá tekur smá stund að pússla saman tíma sem allir geta komið. Svona er þetta líka þegar við BH ætlum að hitta fólk, ekki alltaf hægt að finna tíma í hvelli. En það reddast nú alltaf og við hittum á vini okkar til að gera eitthvað skemmtilegt saman. Í gær fór ég og hitti bestustu æskuvinkonur mínar - það er svo gaman því það er alveg sama hversu langt líður á milli hittinga þá er eins og við höfum hist daginn áður. Í þetta sinn sparkaði ég boltanum af stað (eins og oft áður) og við ákváðum að hittast á Saffran og borða saman og spjalla. Þetta var brilliant og við ákváðum að láta ekki líða lan...

BrúmmBrúmm

Í útvarpinu í dag heyrði ég að búið sé að slá af allar hugmyndir um áframhaldandi tvöföldun á Vesturlandsveginum. Hér keyra aðeins 16 þúsund bílar á dag. Það var rosaleg samgöngubót þegar þessi kafli á milli Reykjavíkur og Mosfellsbæjar var tvöfaldaður - alveg rosalegur munur. Hins vegar má ekki styggja landsbyggðina og Vaðlaheiðagöng, sem eru í kjördæmi samgönguráðherra, eru enn á dagskrá og lítur út fyrir að þau verði gerð. Það keyra þar alveg 600 bílar á dag hvorki meira né minna. Ég segi bara aftur, það er sami rassinn undir öllu því fólki sem kemst í ríkisstjórn. Ég veit ekki hvað oft ég er búin að heyra samgönguráðherra afsaka sig í bak og fyrir vegna peningaleysis. o

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Kick a ginger day...

Yup auðvitað tek ég þátt og fyrsta sem ég geri á morgun er að heimsækja aldraða ömmu mína og sparka í hana. So what þó hún sé komin með hvítt fallegt hár - ég veit vel að hún var með rautt hár í denn. Og ég veit líka að móðir mín hélt í fyrstu að ég yrði rauðhærð... og það glitti í rautt hjá dóttur minni líka þegar hún fæddist, þó þessi rauði litur okkar mæðgna átti eftir að víkja fyrir ljósum lokkum - hjúkk því þá verður ekki sparkað í okkur á morgun! BH á líka nokkur frændsystkini sem við gætum dundað okkur við að sparka í... já já þetta verður fjör! Eða ekki - það hlýtur eitthvað að vera að heima hjá fólki sem lætur sér detta í hug svona vitleysa. Hvaða öfund er þetta út í fólk með rautt hár? o

okílídókíli

Well - við verðum heldur vinafá næsta sumar. KEB er endalaust að selja í fjáröflunarskyni fyrir ferðina til Danmerkur næsta júlí. Allir verða hundleiðir á okkur og svara ekki símanum, segjast ekki hafa fengið tölvupóst og koma ekki til dyra þegar við erum annars vegar. Og til að tryggja að enginn nenni að lesa þetta hérna áfram þá ætla ég að koma því hér á framfæri að hann er að selja jólarósir, kerti, jólakort, súkkulaðidagatöl, kaffi og m.a.s. sokka. Þannig að það væri vel þegið að ef fólk er í þeim hugleiðingum að kaupa þessa hluti hvort sem er að styrkja drenginn svo mamman fari ekki endanlega á hausinn og barnið komist í þessa skemmtilegu ferð :o) Væri t.d. ekki tilvalið að setja gott kaffi frá Kaffitár í jólapakkann til ömmu og afa og senda falleg jólakort teiknuð af Heklu (þekkið myndirnar þegar þið sjáið þær) til vina og vandamanna? Kaupa ekki allar alvöru húsmæður jólarósir á aðventunni? Súkkulaðidagatölin eru sko með 25 gluggum - já já einn auka fyrir góða krakka (eða þau kom...

Fréttahelstið...

Í gær tók litla drottningin það að sér að elda matinn. Púff - það er best að ég geri þetta bara því gikkurinn ég fékk í magann þegar ég heyrði matseðilinn. Jú sko mín fór með mömmu sinni í fiskbúðina og var alsæl þegar hún sá í glugganum auglýsta GLÆNÝJA LÍNUÝSU. Okkur vantaði einmitt ýsu. Hún ákvað samt að spyrja hvað er "línuýsa"? Hún tjáði manninum í fiskbúðinni að hún vildi ýsu, roð- og beinlausa og þegar hann spurði hvað hún vildi mikið þá svaraði hún "það veit ég ekkert" LoL Öllu vanur spurði gaurinn hve margir væru í mat og svarið var fjórir. Vorum við sátt við 800gr. - kg. Og hann skellti sléttu (alveg sléttu) kílói á bakkann og allir sáttir. Sko ég var ekki alveg að nenna þessum rétti gott fólk. Ég sótti dömuna í skólann í gær því hún missteig sig á sunnudaginn svo illa að hún var bólgin og haltrandi. Á leið frá skólanum í fiskbúðina var þetta rætt. Jú það er sko laukur LAUKUR ojj - mínar verstu martraðir í æsku við matarborðið (fyrir utan lifur *hrollur*) ...