Fara í aðalinnihald

Færslur

Er ekki í lagi

Er að horfa á Oprah - jú ég er líka að vinna verkefni - Verið að ræða svefntruflanir, verð að kíkja á það því BH sefur nánast ekkert og getur ekkert sofið að viti. ég hins vegar sofna á 10 sekúndum sléttum. Algeng spurning er: "Ertu sofnuð?" Nú segja sérfræðingarnir í sjónvarpinu að ég sé ekki í lagi því ég sofna svo fljótt. HHmmm en þetta er ekki vandamál hjá mér - málið er segir gaurinn að sá sem sofnar svo fljótt vanti meiri svefn. Já já sennilega rétt - en mér fannst það samt fyndið að ég er ekki í lagi því mér gengur of vel að sofna. Snore

Nýtt heimili

Var bara komin með símann í hönd og að hringja til að gera tilboð - 180 milljónir er ekki neitt svo ég ætlaði að bara að slétta þetta út á 200 milljónir. Geggjað hús til sölu http://visir.is/article/20071030/LIFID01/71030074 . En þá mundi ég - æi já Kjartan með ofnæmi fyrir hestum - endemis, annars værum við pottþétt bara á leið í Asparhvarf. Og svo myndum við fara í hvarf líka þegar kæmi að skuldadögum. En það væri seinni tíma vandamál. Þetta hefði hentað okkur svo vel, Svandís hefði fyllt hesthúsið, Karlotta myndi ríða út alla daga eftir skóla, ég myndi liggja í heita pottinum og glápa á sjónvarpið. Kjartan Elvar fengi nóg efni til að taka upp þarna og Baldvin - ja ætli hann myndi ekki bara endanlega verða gráhærður og reyna að vinna fyrir öllu saman, hann hefur aldrei kunnað að slappa af. En svona er þetta Kjartan Elvar gæti ekki búið þarna - yrðum þá að skilja hann bara eftir og ég vil það ekki þannig að við ætlum að vera áfram í kofanum okkar í Leirutanganum. Það vill svo til að v...

Bleehh

KEB var heima í dag, kvefaður og slappur. Missti af Halloween partýinu í gær - var að byrja að vefja hann eins og múmíu með 16 metrum af teygjubindi þegar hann nánast líður útaf - hvítur í framan. Þannig að hann var bara heima í dag, fer í skólann á morgun en ætla að halda honum inni. Er skíthrædd um að ég nái í þessa pest líka þetta árið. Man ekki hvenær ég varð lasin síðast - veit að ég hef ekki lagst í rúmið síðan ég byrjaði í skólanum 2004. KBB náði sér í frunsu - kom að því, bara spurning um tíma. Ég fæ svona ógeð á vörina öðru hvoru - þakka fyrir að Zovir var fundið upp. Þetta var viðbjóðslega vont hérna áður en það kom á markaðinn. Veturinn aðeins að minna á sig með kaldara veðri og pínulítið af snjó. KBB var svo ánægð þegar hún sá snjóinn á sunnudagskvöldið - SJÁÐU ALLANN ÞENNAN SNJÓ - mmhhmm náði varla sentimetra og krakkinn alveg að sleppa sér. Hún og Diljá notuðu tækifærið daginn eftir og voru duglegar úti að leika sér. Og áðan þegar KBB kom úr skólanum fór hún út í garð með...

Ákveðin/dónaleg

Fórum mæðgurnar í Hagkaup áðan - planið var að skipta út gölluðum leggings buxum af dömunni því það var komið gat á þær. Þoli ekki að kaupa föt sem eru með saumsprettu eftir fyrsta þvott og jafnvel fyrr. Við komum að kassanum og Karlotta hvíslar að mömmu sinni: "Ekki vera dónaleg." Ég kom af fjöllum - dónaleg, er ég vön því? Hef ég verið dónaleg í búðum? Jú þegar þú varst að tala við manninn út af tölvunni manstu? Henni fannst ég greinilega heldur hörð í sumar er ég var ekki sátt við að bíða í marga daga eftir tölvu sem ekki var búin að vera lengur en 6 vikur inni á heimilinu okkar. Biðum frá mánudegi til föstudags og þá var okkur sagt að bíða lengur - þetta var í Elko - bloggaði þetta í sumar þannig að ég nenni ekki að fara í þá sálma aftur - en ég var ekki dónaleg, aðeins MJÖG ákveðin. Og það virkaði líka ágætlega, fengum nýja vél seinnipart sama dags. Sorry en ég er bara ekki sátt við þegar okkur er selt rándýrt dót sem ekki endist lengur en einn og hálfann mánuð og eiga s...

Rólegheit

Vetrarfrí enn hjá krökkunum - ég sit og er að læra, reyna að ljúka verkefnum áður en ég á að skila. KEB slappur, drepast úr kvefi greyið, vona að hann endi ekki eins og Svandís - hundveikur í 2 vikur. Ætla að komast aðeins áfram hérna í lestri og verkefnum, skreppa svo aðeins út með krökkunum svo við myglum ekki hérna. Kjartan er að fara í Hrekkjavökupartý á eftir - Ívar vinur hans á afmæli. Það er svona verið að ræða það hvort hann ætli að fara sem Zombie eða Drakúla, sjáum til hvort við náum að gera flottara. Karlotta ekki hress með að þurfa að fara í fimleika á eftir, það er svo gott að vera bara í fríi. Annars lítið að gerast hérna hjá okkur, við sváfum yfir okkur í morgun, þ.e. BH rumskaði ekki fyrr en 9:40, allt of seint. Hann sá eini sem þarf að vinna í dag, þ.e. utan heimilis. Ég vil nú meina að ég sé að vinna 24/7 allann ársins hring. Þannig að í Leirutanganum er allt rólegt í dag í góða veðrinu - elska þetta veður, KALT, SÓL OG LOGN. Bara klæða sig vel og láta kvefið ekki ná ...

Hver var hann?

Þrjár sannanir fyrir því að Jesú var mexíkani. - Hann hét Jesú - Hann talaði tvö tungumál - Hann hafði aldrei frið fyrir yfirvöldum Sömuleiðis eru líkur á því að Jesú hafi verið svertingi. - Hann kallaði alla "bræður sína" - Hann var hrifinn af gospel - Hann fékk aldrei sanngjarna málsmeðferð hjá yfirvöldum En það gæti líka vel verið að hann hafi verið Gyðingur. - Hann fetaði í fótspor föður síns - Hann bjó heima þangað til að hann var 33 ára - Hann notaði ólífuoliu Þrjár sannanir sem sýna sterklega að Jesú hefði vel getað verið ítalskur. - Hann baðaði út höndunum þegar hann talaði - Hann drakk vín með hverri máltíð - Hann var viss um að mamma sín væri hrein mey og mamma hans var viss um það að hann væri Guð. Þrír möguleikar sem sýna að hann hefði getað verið frá Kaliforníu. - Hann lét aldrei klippa sig - Hann gekk berfættur - Hann lagði grunn að nýrri trú En það er þó mjög líklegt að hann hafi verið Íri. - Hann giftist aldrei - Hann elskaði að vera úti í náttúrunni - Hann va...