Fara í aðalinnihald

Nóvember

Október búinn að renna sitt skeið þetta árið. Margir eflaust fegnir. Geta farið aftur upp í sófa, glápt á sjónvarp og gúffað í sig nammi eða fengið sér bjór.

Hér er fólk frekar slakt. Reynir að halda dampi allt árið frekar. Gengur misvel. En núna, í nóvember, á að taka á því. Jökull dró BH með sér í að hlaupa 200km í nóvember. Það er ástæða fyrir að það var ekki gert í október, Jökull var ekki á landinu í 2 vikur þann mánuð.

Hér má fylgjast með árangri þeirra:

togo.is

Og svo bætti hann við - ekkert gos í mánuð - og spurði BH hvort hann væri með. Sem hann er.

Ég ætla að vera með í látunum. Ekkert gos er ekkert mál. Ég drekk ekki mikið gos. Vona að ég eigi ekki eftir að sjá eftir að hafa sagt þetta. Því stundum VERÐUR maður að fá gos. Með pizzu, með pylsum og þannig. En sjáum til. Ég ætla að trappa mig niður í nammiáti líka og sykurneyslu. En ég ætla ekki að hætta, bara að minnka það aðeins. Og nei popp telst ekki með.

EN ég ætla ekki að hlaup 200km í nóvember. Það kemur ekki til mála. Því ef ég reyni það þá má gera ráð fyrir að ég endi á spítala, ÖSKRANDI úr verkjum í kroppnum. Nema ég hnígi niður af þreytu áður. Ég á ekki orku í svona mikið á þessum tíma. En maður sníður sér þá stakk eftir vexti, ekki satt ?

Ég ætla að hlaupa 50km, held að það sé raunhæft. Svona miðað við hvað ég hef verið léleg undanfarið ár að drulla mér af stað í hlaup. Og svo held ég að kroppurinn geti ráðið við það ef ég er dugleg þess á milli að synda, fara í heita pottinn og gufu :) Það er hrikalega góð gulrót að komast í gufu eftir átök. Ég er farin að endast sæmilega inni í sauna núna, og hangi ekki lengur bara þar sem "kaldast" er. Farin að fara í þessar vel heitu og líkar vel.

Þannig að... hlaup 50km og ekkert gos í nóvember.

Ó nei - gerum þetta áhugavert. Bætum einu verkefni við.

Man einhver eftir peysunni sem ég var að prjóna ? Ekki ? Bara ég !

Þessi:

Nenni ekki að taka betri mynd - virkar dáldið kræklótt hérna. En hún er semsagt tilbúin. Yup - búið að fela enda og sauma flís innan á kragann svo hún stingi minna. ÖÖ játs - ég gerð það líka.

En þá ákvað snillingurinn að vestið sem hún var prjónuð undir væri of stórt, endanleg ákvörðun tekin um að það yrði ekki notað.

Nokkrum dögum seinna ákvað hann að svart vesti væri málið - ekki hægt að nota svarta peysu undir svart vesti... er það ? Mér finnst það ekki. Svo ég bauðst til að prjóna aðra ljósa, eins peysu. Nú veit ég alla vega að þessi passar, einhverjir að efast um það á tímabili.

Þessi svarta tók ekki nema rúma sjö mánuði að leka af prjónunum. Já nei alls ekki, ég er ekki svona lengi að prjóna. Ég hins vegar prjóna sjaldan og oft liggur hálfkláruð flíkin vikur og mánuði saman án þess að ég snerti á verkinu.

Þannig að núna, í þessu markmiðabrjálæði sem er í gangi, ákvað ég að þessi ljósgráa yrði tilbúin 1. desember. Fór í gær og keypti lopa, og er að manna mig upp í að fitja upp þessar tvöhundruð og eitthvað lykkjur og byrja - klára alla vega stroffið í kvöld. Þannig að framundan er að sitja í sófanum, glápa á orange is the new black (og eitthvað meira) og prjóna eins og galin. Þess á milli smelli ég á mig spandexgallanum og hleyp eins og vindurinn, lek svo aðeins niður í gufunni og mýki mig í heita pottinum áður en ég gríp prjónana aftur.



Viss um að vigtin fari vel niður þennan mánuðinn, hjá okkur öllum á heimilinu, því það verður enginn tími til að elda mat eða borða.

Later

PS - hann hefur ekki farið úr svörtu peysunni eftir að hann fékk hana formlega afhenta. Hún er brjálæðislega hlý og honum er alltaf brálæðislega kalt... en ekki lengur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...