Fara í aðalinnihald

Done

13. nóvember

Tók ekki myndir meira fyrr en ég var búin. Prjónaði ekki á föstudaginn, en á laugardagskvöldið prjónaði ég þar til nokkrir hringir voru eftir af kraganum, svona um hálfur kraginn. Ákvað að vera gáfuð og fara að sofa á miðnætti frekar en að þrjóskast við. Það var hlaupið í dag, sunnudag, nefnilega. Ákvað að ég þyrfti að vakna mátulega snemma svo ég gæti verið með í því. Og það gekk bara ljómandi vel. Hljóp 7km og á því aðeins eftir 5km í 50km í nóvember.

16. nóvember. Hér er peysukvikindið svo tilbúið, búið að fela enda og alles.


Fer í þvottavélina á morgun og svo má búast við að það taki sólarhringinn að þorna. Þá hendi ég flís innan á kragann og karlinn getur farið að nota hana. Þá kannski næ ég honum úr þessari svörtu. Búið að vera bölvað streð að fá hana "lánaða" í smástund til að mæla svo þær verði eins.

Tvö markmið af þremur lokið og mánuðurinn rétt hálfnaður. Ég er mjög sátt. Spurning um að lengja í hlaupamarkmiðinu - ég ætla alla vega að hlaupa út nóvember... og svo áfram bara.

Ætla að prjóna meira - finna mér eitthvað annað en peysu samt held ég. Ullarsokkar eru ofarlega á óskalistanum. Ætti að gera nokkra svoleiðis til að hælskrattinn festist í minninu. Alla vega ætla ég að gera minni stykki - langar það.

Svo ætti ég kannski að setja mér verðugt markmið. Eitthvað sem þarf að rembast við að ná og ekki er auðvelt (vissi ekki hvort þessir 50km og lopapeysa væru erfitt eða auðvelt). T.d. hafa það sem markmið að aulast í rúmið fyrir kl 23 á kvöldin og vera spræk á morgnana... líka um helgar. Það er markmið sem ég þyrfti að hafa fyrir - ég ætla aðeins að sofa á því.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...