Fara í aðalinnihald

#NÓV50

Ég kláraði að hlaupa þessa 50 kílómetra áðan. Drullaði mér út eftir klukkan 22 þegar ég kom heim af smá kvenfélagsstjórnar fundi. Ný stjórn að taka við, vorum fljótar að plana næsta ár. Alla vega drög að skemmtilegheitum næsta árs. Og sátum svo og spjölluðum. Þar sem ég vissi að ég yrði upptekin í kvöld ætlaði ég að klára þetta í dag en gafst ekki tími til þess. Svo ég ákvað, þrátt fyrir að nenna alls ekki, að drífa mig út með Ronju þegar ég kom heim.

BH hafði farið með rakkana í bæinn að hlaupa með Jökli og fleirum fyrr um kvöldið og var enn að heiman.

Hlaupið gekk svona og svona - not my finest moment, alla vega ekki til að byrja með. Lagaðist er ég var komin áleiðis og var þokkalega sátt í lokin - ég drullaði mér alla vega út og kláraði þetta. Þó ég ætti lítið eftir og gæti auðveldlega geymt þessa fimm kílómetra þar til á morgun.

Ætla að halda áfram að hlaupa, en reyna að vera duglegri að gera meira... t.d. drífa mig í yogamálið aftur, hef gott af því. Ég er stirð eins og lík, það er vandræðalegt.

Vildi koma því hér á prent að þann 18. nóvember kláraði ég hlaupamarkmið nóvembermánaðar :)

Þá er það komið !

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...