Nú er ég búin að bíða þolinmóð (spennt) síðan í apríl. Ég seldi línuskautana mína (KEB) og ætlaði að kaupa mér nýja strax í kjölfarið. Það fór eins og það fór. En eftir pælingar á netinu og samningaviðræður við utanlandsfara var ákveðið að kaupa skauta í USA og fá vinkonu til að koma með þá heim. Ég passaði hundana hennar í staðinn á meðan hún naut þess að vera í fríi í landi tækifæranna.
Svo kæru veðurguðir... WTF ?
Ég er búin að bíða súper lengi og vera súper þolinmóð (it is hard man). Horfa á aðra þeysast um á sínum skautum með voffa á undan sér. Oft og mörgum sinnum. Stundum setið heima og gert eitthvað annað og stundum flotið með á hjóli og jafnvel farið með og verið skilin eftir í rykinu af því ég var bara skokkandi á tveimur jafnfljótum.
Og þegar Auður kemur heim, með skautana mína fínu, þá er spáin bara HAUSTLÆGÐIR OG RIGNING. Í alvöru ???? Hundarnir mínir nenna ekki einu sinni út... og þau vilja yfirleitt vera úti sama hvað.
Ég þarf að bíða lágmark fram á föstudag og sennilega fram á helgi. REALLY ? Mér finnst þetta eins ósanngjarnt og hægt er að hafa það. En hey, ég er í æfingu. Svo ég bíð þá bara "róleg" áfram. En get á meðan notið þess að klappa þeim og kannski máta þá öðru hverju til að vera viss um að þeir séu ekki ofsjónir mínar.
Þetta er klárlega mitt helvítis fokking fokk akkúrat núna !
Later

Ummæli