Fara í aðalinnihald

Me and my girl - my girl and me

Við mæðgur brunuðum í Skorradalinn eftir að hafa staðið vaktina í Varmárskóla, gagnfræðihúsinu. Þar vorum við í smá fjáröflun fyrir Landsmót Skáta. Þjóðdansafélagsmenn frá öllum Norðurlöndunum gistu í skólabyggingunum og vorum við dyraverðir og sjoppukellingar í átta klukkustundir.

Ma og pa tóku á móti okkur og fengum við kvöldverð a La móðir mín - alltaf best. En á sunnudaginn drifu þau sig af stað heim, fyrst einn hringur með kylfur og litla bolta. Við mæðgur urðum þá bara tvær eftir og létum fara vel um okkur. Heiti potturinn er vel nýttur.

Það er frekar huggulegt að sitja þarna einn með sjálfum sér með i-pod í eyrunum og láta lesa fyrir sig :) Vatnið mátulega heitt til að maður geti setið þarna endalaust. Kem ekki inn með geðveikan hausverk, dösuð og vatnsþurfi. Milt og gott veður þó sólina vanti - þetta er bara verulega notalegt.

Í gærkvöldi gerðum við það eina sem hægt var... við horfðum á úrslitaleikinn í HM, en ekki hvað ? Og auðvitað héldum við með sitthvoru liðinu. Sannar mæðgur, ekki sammála um neitt. Vorum saddar eftir matinn og ákváðum því að grilla okkur banana í hálfleik og þegar stundin rann upp kom í ljós að hvorug okkar hafði hugsað um annað en banana með súkkulaði í 20 mínútur. Svo þegar stundin rann upp var farið í að mixa svoleiðis og popp pokarnir opnaðir, svo var smjattað vel í seinni hálfleik og í framlengingunni. Það stóð pínu í mér þegar Þjóðverjarnir skoruðu, hjúkk að vatnið var nálægt.

Hvorug heit í boltanum samt svo það urðu ekki slagsmál né fýla þegar Þýskaland vann. En dóttirin var ansi drjúg með "sína" menn. Dáðist að fegurð þeirra og hreysti. Ég hins vegar... ég var bara í MESSI ;)


Er leið á kvöldið heyrðist í litlu drottningunni... Það er svo tómt hérna - þegar það er enginn hundur !

Hún er vön að sofa með Leo hjá sér í herberginu sínu. Og oftar en ekki er hann búinn að lauma sér uppí til hennar áður en hún vaknar :) Henni finnst það ekkert leiðinlegt... pínu heitt kannski, en ekki leiðinlegt. Mesta mildi að hún kafni ekki þegar hann leggst þarna hjá henni - þetta rúm er PÍNULÍTIÐ og hann er sæmilegt flykki. Maður rétt kemst einn fyrir þarna.

Henni þykir samt ekki slæmt að vera þarna í þessari skonsu sinni - ég sé hana varla, hún er svo busy yfir þáttum sem hún er með á tölvunni sinni... og ef ég reyni að kíkja á hana, svona til að vita hvort hún andi ennþá...

... þá hálfskellir hún á mig og biður mig vel að lifa ! En ég er kát... hún andar enn.

Í dag ákváðum við að fara í Borgarnes og rölta um bæinn. Ekki mikið að gerast og ekki mikið að sjá svo sem. En kíktum á Brákarsundið - fundum nú eiginlega ekki Brákarey samt :/





Skoðuðum okkur aðeins um og horfðum út á hafið... fjörðinn. Nutum þess bara að vera á staðnum og finna góða veðrið í loftinu.

 Ég tek of myndir af svona skiltum og svona... hún ákvað að photobomba þau moment ... ítrekað. En nennti ALLS EKKI að lesa á þetta. Textinn tekinn úr fornsögunum, þegar Skalla-Grímur henti steini á eftir Þorgerði Brák, fóstru Egils, hitti hana á milli herðablaðanna og drekkti henni. Sagði henni að hún ætti eftir að lesa þetta allt í 1. eða 2. bekk í menntó... "já já þá geri ég það bara þá - ég nenni þessu ekki núna, bull texti - takk og bless.
 Fórum þarna upp til að kíkja á útsýnið...
Frekar ágætt útsýni bara - Borgarfjarðarbrúin 40 ára núna, sá það í fréttunum í kvöld.
Okkur þótti bara ágætt að skoða bæinn í rólegheitum. Bæinn sem við höfum komið svo oft í til að versla, fara í sund, fara í garðinn þeirra - þekkjum okkur ágætlega hér :)

Kíktum í garðinn, hann er voða kósý - ég fann hann ekki fyrst. Fór að íþróttamiðstöðinni, fannst hann eiga að vera á því svæði. Kom í ljós, þegar við fundum garðinn á röltinu, að við vorum beint fyrir framan hann þegar við vorum við sundlaugina :) Sáum það bara ekki.

Og þar er talið að Skalla-Grímur, pabbi Egils og Böðvar, sonur Egils, séu heygðir... við fórum með nokkrar bænir þeim til handa... eða ekki. Dóttir mín var ekki áhugasöm um þessa sögu.
Þetta er afskaplega huggulegur lítill garður - gott að koma þarna og njóta... hnerra... smá.
Okkur fannst þessi gosbrunnur ekki alveg standa undir nafni en umhverfið var fallegt.

 Og auðvitað settumst við niður og tókum nokkrar selfies... af því það er það sem maður gerir í dag. Og við erum alltaf eðlilegar... messt samt skemmtilegar... alla vega skemmtum við okkur.



Og þar sem við erum dáldið skildar... mikið sömu genin í okkur... þá var auðsamið um smá ís í góða veðrinu.

Dóttirin fékk sér bragðaref og ég sá það strax að það borgar sig að keyra í Borgarnes eftir einum slíkum. Alla vega var ekki verið að telja mylsnurnar af namminu ofan í ísinn. Það sem hún hrúgaði af öllum tegundum í boxið. Vesturbæjarís er svo mikil drulla í sambandi við nammið í bragðarefinn að það er vandræðalegt... enda með endæmum léleg ísbúð að mínu mati, BARA vegna nísku á nammið í bragðarefinn. Sveitafólkið er ekki svona lélegt og dóttirin var hæstánægð með gotteríið - er ansi viss um að ég hefði stoppað dömuna af þegar hún ætlaði að skófla fjórðu skeiðinni af sömu tegund ofan í ísinn. Ég fékk mér ekki bragðaref í þetta sinn, ekki til banani og þá langar mig ekki í svoleiðis :)

Eftir að hafa verslað í Bónus og keyrt tilbaka þá tókum við til við rosalega afslöppun. Minns í pottinn og dóttirin í sjónvarpsgláp. Ég rétt slapp við úrhellisrigningu sem sturtaðist niður eftir að ég var búin í sturtu eftir að hafa legið í bleyti í klukkutíma. Og eftir matinn tók dóttirin vaktina í pottinum... svooo notalegt :)

Förum í bæinn á morgun, langar ekki, en þurfum... komum örugglega aftur fljótlega í mæðgnaferð í dalinn góða :)

Later



Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...