Gat ekki beðið lengur - Smá rok og úði er ég lagði af stað. Krossaði fingur og vonaði það besta...
Vígði þessa áðan
Og það gekk súper vel. Ákvað að vera bara með Ronju mína. Hún er létt og meðfærileg þessi elska. Hún var reyndar bara dáldið dugleg og ég þurfti öðru hverju að hemja hana en það gekk vel.
Vinstri skautinn passar fullkomlega, þessi hægri er svona ívið of lítill. En ég held það sleppi. Við fórum 12 km - frekar erfið leið - og ég er ekki sár á fótunum. Tók aðeins í að rifja upp taktana. Það að bremsa niður brattar brekkur tók aðeins í. Smá beinhimnubólga að minna á sig... en þetta jafnaði sig ágætlega. Ég verð fljót að rífa þetta úr mér. Mér gekk vel að skauta upp brekkur, smá mæði - en hey það er eðlilegt.
Hjólin á þessum eru 90 mm í stað 70 mm svo ég hafði smá áhyggjur af þessu. En þetta var svo mikið eeeekkert mál. Heilt ár síðan ég fór síðast á skauta svo það skipti engu máli. Ég er ekki frá því að það hafi verið auðveldara að ýta sér áfram á þessum en mínum gömlu. Og ekki bara vegna þess að hinir voru orðnir kannski pínu lúnir.
Ég hlakka voða mikið til að þeystast um göngustígana á ofurskautunum mínum :)
Later

Ummæli