Fara í aðalinnihald

Canicross

Tók þátt í Íslandsmeistarakeppni SHKÍ - hljóp fimm kílómetra á Þingvöllum í rigningarsudda. Mjög frískandi og svalandi. Ég bætti mig um tæpa mínútu... 25:01 er minn besti tími hingað til. Það dugði mér til að komast í fyrsta sætið og get ég því kallað mig Íslandsmeistara í fimm kílómetra canicross kvenna. Er nú bara nokkuð ánægð með það, fékk medalíu og bikar og alles - voða montin.

BH tók þátt í tíu kílómetra canicross og vann karlaflokkinn með tímann 49:02 - svo við erum ansi lukkuleg með okkur hjónin núna. Hann tók þátt í dog-scootering í gær. Þá var hann á keðjulausu hjóli með tvo hunda. Varð í öðru sæti og sáttur við það. Annar hundurinn varð sár á grófu malbikinu og neitaði að fara lengra eftir fjóra kílómetra... svo hann kippti Hrímu sinni í fangið og hélt á henni, á hjólinu, næstu fjóra. Úlfur dró þau í mark. Svo þau voru dáldið svöl er þau renndu i mark.

Fólki virðist umhugað um að spilla gleðinni fyrir okkur - bæði um helgina og á Mývatni. Finnst það frekar súrt því ég tel okkur ekki eiga það skilið. Það átti að reyna að gera vesen úr því að hann hafi komið með bara annan hundinn fyrir framan hjólið í mark. Sem betur fer hlustaði viti borið fólk ekki á slíkt kjaftæði. Það mátti velja hvort maður hafði einn eða tvo hunda á keðjulausu hjóli i keppninni... svo það hlýtur að vera í lagi að byrja með tvo og ljúka með einn. Sérstaklega þegar brautin var fáránleg fyrir hunda til að keppa á. ALLT of gróft undirlag og margir hundar með aumar og hreinlega slasaðar loppur eftir hlaupið.

Hríma t.d. hljóp ekki með Olgu tíu kílómetra canicross í dag eins og til stóð, hún varð að vera heima. En það bjargaðist og Olga nældi sér í 2. sætið í kvennaflokki 10 km sem var virkilega vel gert ! Sú sem vann þann flokk fékk farandbikarinn fyrir besta tímann í 10 km í mótinu.

Við höfðum því vit á að setja sokka á hundana í dag, líkt og við ætluðum í gær en gerðum ekki. Hugsa að það hafi hjálpað þó að canicross sé minna álag á hundana en hjól eða sleðar og slíkt.

Hér eru allir sáttir eftir helgina :o)

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
...ég heyri ekkert í þessum "hinum" *öfund* í þeim, ég heyri bara í ykkur! innilega til lukku með sigurinn!.... HMS
Lóa Björk sagði…
Takk fyrir það - við líka bara höldum okkar striki og látum svona sem vind um eyru þjóta... litla sem það getur pirrað :o)
Lóa Björk sagði…
Þessi ummæli hafa verið fjarlægð af höfundi.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...