Fara í aðalinnihald

Today

Við BH ætluðum upphaflega að gifta okkur 28. maí. Vorum búin að græja allt, prestinn, kirkju, organista, ljósmyndara, sal og allt heila klabbið... við vorum bara ready. Svo þegar BH hringdi í prestinn nokkru seinna bara til að staðfesta allt saman, örugglega í mars eða eitthvað, kom i ljós að hann upptekinn þennan dag. Hann hafði ekki fengið símanúmerið okkar og gat ekki látið okkur vita. Smá panic en þetta blessaðist allt saman - eina sem ekki var eins og upphaflega var áætlað var ljósmyndarinn - við skiptum um ljósmyndara.

Í dag eru níu ár síðan ég lagðist undir hnífinn. Fyrir níu árum síðan á þessum tíma var ég svo gjörsamlega að míga í brækurnar á vöknununardeild Landsspítalans Háskólasjúkrahúsi við Hringbraut. Dísusskvísus... svo rosalega að ég man það enn eins og það hafi verið í gær. Eftir rúmlega fjögurra tíma aðgerð þurfti ég að vera á vöknun í u.þ.b. tíu klukkustundir. Og það er ekkert salerni á deildinni. Fólk er venjulega ekki svona lengi á deildinni. Þarna kemur fólk eftir aðgerðir til að vakna og athugað er hvort það sé ekki allt í góðu áður en það er sent niður. En minns fékk að hanga að eilífu að mér fannst. En það var ekkert að samt - það var vitað fyrirfram að þarna fengi ég að liggja í góðan tíma. M.a.s. fékk BH að kíkja til mín þarna upp - það er alls ekki venjan. En það var gerð undantekning fyrir greyið.

Litla fröken ég gat ekki notað bekken - bara ekki séns. Það var reynt... það var sko fullreynt. Eitthvað lík móður minni sem 29 árum áður hafði gengið í gegnum það sama með helv... bekken. Hún var heppnari því salerni var valkostur í hennar stöðu.

Er ég kom aftur niður á skurðdeild, hálfvönkuð og að drepast í hálsinum - með stóran hvítan plástur eins og ég hefði lent í hnífabardaga við vélhjólagengi - spurði ég veikróma hvort ég mætti skrölta á fætur og fara á salerni. Þær litu á mig og spurðu stóreygar hvort ég treysti mér til þess. Jájá og svo greip ég hundinn (draslið á hjólum sem heldur vökvanum í æðina uppi) og "hljóp" af stað. Vá það hefur aldrei verið eins gott að komast til að létta á sér.

Þetta var mitt helsta áhyggjuefni í janúar 2004 er ég trítlaði þarna uppeftir í sömu erindagjörðum. Ég bað um að fá þvaglegg því þetta gæti ég ekki aftur. Það var nú ekki farið að óskum mínum samt. En það bjargaðist því aðgerðin var styttri og ég fékk að fara niður miklu fyrr en áður. En 2004 fór röddin í klessu - en kom sem betur fer í rólegheitum aftur... að mestu. Þrátt fyrir að ekkert sjáist á raddböndunum í dag veit ég að einhver skaði hlaust af. Ég verð óskaplega þreytt í röddinni ef ég þarf að beita henni inni á skemmtistöðum og miklum hávaða. Röddin brestur oftar en áður ef ég er að kalla og svona eitthvað. En ég er góð bara... á meðan ég get talað án þess að hljóma eins og ég sé að skæla. Eini sem kvartar stundum er BH - hann er ekkert feiminn við að biðja mig um að þegja þegar röddin er pirrandi. Nema hann noti það bara sem afsökun þegar hann nennir ekki að hlusta mig... það er möguleiki.

Dagurinn í dag var töluvert betri en fyrir níu árum. Tókum aðeins til hérna hjá okkur og skoppuðum eitthvað hérna heima í rólegheitum. En seinnipartinn var ég dregin í Smáralindina og í Útilíf. Þar var gengið að skóhillunum og BH spurði hvort ég vildi svona á hendina eða svona hinsegin. Við vorum sammála um þetta hinsegin, það var líka ódýrara. Og vonuðum svo bæði að það virkaði vel. Nú er ég komin með svona fínerí eitthvað til að setja í skóna mína þegar ég fer út að hlaupa. Stykkið sendir svo upplýsingar í ipod-inn minn og þá fæ ég að vita vegalengdirnar sem ég geng eða hleyp. Líka hvað ég eyði mörgum kaloríum og svona. Snilld :o) Svo lét ég það eftir mér að fá jakka til að vera í á hlaupum. Og vildi ekki svartan - ekki vera eins og allir hinir.

Er heim var komið ákváðum við KBB að baka saman Muffins. Tvöföld uppskrift í þetta sinn, en bara einföld af kremi. Búnar að læra það.

En nú get ég ekki beðið með að hlaupa svo ég hugsa að ég skelli mér út á morgun þrátt fyrir að fá mér frí um helgar venjulega :o)

Later

Ummæli

Olga sagði…
Dekurrófa að fá allan þennan búnað fyrir skokkið- en þú átt það svo innilega skilið! Búin að vera svo dugleg. :)
Lóa Björk sagði…
ohhh það er svo notalegt að vera svona dekurrófa :o)

Var samt að uppgötva að í raun þarf að nota ákveðna nike skó við þetta - þá er hola fyrir græjuna í skónum... ég tími ekkert að skipta ofurgóðu skónum mínum neitt, svo við þurfum að græja þetta eitthvað aðeins :o)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...