Komin með plan... hlaupaplan. Náði mér í eitthvað á netinu sem á að koma mér upp úr sófanum (var komin úr honum fyrir löngu) í fimm kílómetrana á hlaupum. Þetta er níu vikna plan. Svo eftir níu vikur vonast ég til að geta skokkað fimm kílómetra á hálftíma - án þess að blása úr nös... já eða alla vega komist heim aftur.
Stefni ekkert í maraþon eða neitt slíkt. Langar bara að ná mér í þol og styrk til að geta hlaupið auðveldlega með hundunum, og auðvitað tek ég þau með mér þessar níu vikur. Maður þarf að geta hlaupið með sleðum og saccovögnum og hjólum og á eftir hundum og á línuskautum og þetta helsta :o) Er orðin nokkuð vön að hlaupa þetta en hef lítið úthald og nú verður bætt úr því markvisst.
Búin að kaupa skóna, sem eru súper, búin að prófa þá... sem gekk vel en var ekki mjög markvisst hlaup. Núna er ég búin að hlaupa eftir þessari áætlun fyrsta skiptið... nú er bara að halda áfram. Fer aftur á miðvikudaginn og svo föstudaginn, þrisvar í viku. Held að það sé alveg nóg fyrir mig því svo erum við alltaf að leika okkur líka svo ég verð að hafa krafta í það. Ætla ekki að sleppa saccoferðum eða línuskauta ævintýrum. Svo er ég farin að hlakka mikið til að komast á Mýrdalsjökul næstu helgi.
Svo er maður aðeins farin að spá í að halda í við sig nammi og kökuskammtinn. Féll aðeins á því um páskana eins og við var að búast. Er að ná mér niður aftur. Sex kíló farin síðan í febrúar, aðeins föst í því núna. Trúi ekki öðru en að mér takist að ná fleirum ef ég verð dugleg að hlaupa og sleppa því að detta í það á kvöldin :o) Og nei ég er ekki í massífu aðhaldi... enginn matarkúr eða neitt slíkt. Ég er bara ekki nógu vond við sjálfa mig til að fara út í þann pakka. Og svo vita allir sem vilja vita að slíkt gengur ekki til lengdar. Svo ég elda bara góðan mat og fæ mér kökur í veislum. Reyni bara að hreyfa mig gáfulega og borða gáfulega alla vikuna - ekkert á kvöldin. Ekki verið að virka síðustu daga... aðeins of mikið kökudót til á heimilinu núna :o) En svo dett ég í gírinn aftur og verð voða ánægð með sjálfa mig !
Anyways - dagur eitt kominn á skokkplaninu :o) Óska þess heitt og innilega að fæturnir á mér klikki ekki á mig.... meeeen ég verð svo svekkt þá!
Later

Ummæli