Fara í aðalinnihald

Í alvöru

Ég er að spá í að notfæra mér veiðieðlið í tíkinni minni. Ég er engin sérstök fuglaáhugamanneskja og er orðin þreytt á að fuglar reyni sitt besta til þess að breyta húsinu mínu í raðhús á vorin. Og nú eru þessir vitleysingar farnir að athuga með hreiðurgerð að hausti líka. Nenni þeim ekki. BH hefur ekki undan við að koma þeim í burtu á vorin og fylla upp í öll möguleg og ómöguleg göt í þakskyggninu hjá okkur. Spurning hvort hann láti verða af því einn daginn að KLÁRA að loka þessu almennilega?

Ætli það verði ekki bara þegar hann verður búinn að lakka alla opnanlegu gluggana hjá okkur. Það eru bara tíu ár síðan það átti að gerast :o) Þetta hlýtur að vera í tímaröð. Litla sem okkur var bannað að setja stormjárnin á sínum tíma því það átti eftir að lakka opnanlegu gluggana. Ætli við værum ekki ennþá með alla glugga hérna blakandi í haust og vetrarlægðunum ef frúin hefði ekki eina óveðursnótt staðið upp á stólum og skrúfað stormjárn í gluggana sem skelltust hérna fram og aftur á meðan karlinn svaf á sínu græna í einhverju útlandinu. Það er spurning...

Spurning hvaða dýr ég gæti fengið á heimilið sem sæi um viðhald... - kannski ég fái mér bara viðhald :o) Og ef viðhaldið gæti séð um garðinn líka, það væri fullkomið :o) Þá gætum við bóndinn bara skellt okkur í bíó eða sleðaferð á meðan... hmm umhugsunarvert!

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...