Nenni aldrei að lesa skilaboð í heimabankanum - en las þetta áðan, búið að vera þarna lengi...
Kæri viðskiptavinur
Fjármálafyrirtækjum er skylt, samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, að framkvæma áreiðanleikakönnun á viðskiptavinum sínum með því að taka afrit af gildum persónuskilríkjum þeirra.
Áreiðanleikakönnunin er liður í því að auka öryggi í viðskiptum og koma í veg fyrir auðkennaþjófnað.
Samkvæmt viðskiptamannakerfi Íslandsbanka átt þú eftir að láta taka afrit af skilríkjunum þínum og biðjum við þig um að snúa þér til næsta útibús Íslandsbanka við fyrsta tækifæri og hafa gild persónuskilríki meðferðis. Gild persónuskilríki eru vegabréf, ökuskírteini og nafnskírteini. Frekari upplýsingar má nálgast á vef bankans www.islandsbanki.is eða hjá þjónustuveri Íslandsbanka í síma 440-4000.
Virðingafyllst,
starfsfólk Íslandsbanka
Við erum ekkert að grínast með þetta neitt - róleg. Ég er ekkert á leiðinni neitt í bankann til að þeir geti tekið ljósrit af skilríkjum mínum.
Það er varla til falskara öryggi en hjá bönkum og flugfélögum út úm allan heim. Nenni ekki einu sinni að byrja að ræða þennan fáránleika sem þeir kalla öryggi fólks.
Pirruð

Ummæli