Ég hef í gegnum tíðina stundum haldið því fram að það sé eitthvað í vantinu hér í Mosó. Börnin mín fæddust ekki stór, enda komu þau bæði mánuði fyrir tímann - þá voru þau tilbúin í lífið. En þegar þau komu í heiminn þá stækkuðu þau hratt. Hafa bæði alltaf þótt frekar stór. Hún kannski áberandi meira en hann. Í dag er drengurinn orðinn þokkalega hávaxinn... eða svona eins og honum þótti nóg. Þriggja ára sagði hann mömmu sinni að hann ætlaði að verða stærri en mamma en minni en pabbi... hann stóð við það. En hann ákvað að stækka alla vöðva líka, þannig að hann er töluvert þykkari en karl faðir sinn, talaði ekkert um það þarna um árið - þannig að nú er að viðhalda ósköpunum og æfir hann því Olympískar lyftingar af krafti (pun not intended - er bara svona fyndin). Honum gengur svona ljómandi vel, svo vel að reyndir menn hæla honum í hástert og tala um að hann sé þvílíkt efnilegur, svo mikið að þeir eiga ekki orð. Um helgina hefur bæjarhátíðin "Í túninu heima" hér í M...