Hér heyrist stundum - "Í alvöru ég ryksugaði fyrir korteri - nei... sko... í alvöru"
Fólk heldur að við séum að grínast - við grínumst ekki með svona - þetta er löööngu hætt að vera fyndið. Þau eru bara hérna ennþá af því þau eru svo sæt, og krúttileg og þau halda okkur í formi og nenna endalaust að leika við okkur og við elskum þau endalaust - það er eina ástæðan.
Dóttir mín dundaði sér við að plokka undifeldinn (sem er að springa undan yfirfeldinum) á Leo í kvöld. Við það eignuðumst við annan hund. Við höfum ákveðið að kalla hann Fluffy, okkur þótti það við hæfi.
Enginn hundur slasaðist við gerð nýja hundsins og mér þykir leitt að tilkynna að það sér ekki högg á vatni. Hann er ennþá eins og tættur flækingur og nóg er af efni í fuuullt af svona Fluffy hundum.
Svo bíða hin á kantinum - þannig að ef einhver vill svona hvítan Fluffy, bara láta okkur vita. Tekur um þrjár mínútur að útbúa hann. Og það er bara af því að við þurfum að móta efnið í hund.
Later
(ef ég hef tíma - þarf að ryksuga... stöðugt)

Ummæli