Litla skottan mín er komin með bílpróf. Það er bara þannig... bæ bæ bíll ! Það er auðvitað standard joke að vara aðra ökumenn við en ég er ekki að grínast. Við foreldrar hennar höfum ekki beðið með eftirvæntingu neitt. Bróðir hennar fékk bílpróf fyrir 3 árum og við vorum pollróleg sko. Henni fannst hann aðeins of rólegur og vildi meina að hann keyrði eins og Ross í Friends - sumsé ekki mikið um læti neitt. Hentaði okkur foreldrum vel. Árið 2004 varð okkur föður hennar ljóst að hún myndi líkjast sumum í fjölskyldum okkar (ekki okkur auðvitað - við erum spök) Við vorum í Kópavogi og hún var farþegi í bíl, æ þið getið metið þetta bara sjálf svo sem... Svipurinn segir allt sem þarf... "fæ ég ekki að keyra?" Ok hún sætti sig við að vera farþegi en, stjórnaði alveg og tók fullan þátt í að keyra allt í klessu Og var mjög virk að finna fórnarlömb Engin samúð með þeim sem fengu að finna fyrir því Akkúrat engin... Í alvöru - við hlógum líka... .....