Fara í aðalinnihald

Færslur

Damn straight

Hef ég ekki alltaf sagt að hér búa engar prinsessur - aðeins drottningar... Later

Samtal

Sátum við matarborðið fjölskyldan um daginn. Það gerist ekki oft núorðið að við setjumst öll saman við kvöldmatinn. KEB vinnur og vinnur á öllum tímum sólarhrings og borðar bara þegar hann stekkur inn og fer svo jafnvel aftur. KBB er á þvælingi og hér er bara eldað og svo grípur fólk mat þegar það hefur tíma. Anyways - hér sátu allir og ræddu málin. Dóttir mín er mjög upptekin af þáttum sem hún hefur fengið inn á vélina sína frá góðri vinkonu. Þessir þættir eru svo spennandi að ég þurfti að setja henni tímamörk, sko að hún fái ekki meira fyrr en eftir mánuð... annars glápir hún bara og glápir. Þessir þættir heita Super Natural... og mamman bætir alltaf S-i aftan við. Ég man ekkert hvað var verið að ræða en ég sagði alla vega Super naturals... KBB: Hættu að segja súpernaturals... það er ekkert S KEB: ok Úbernaturals mamman er ekki svona fljót að hugsa, en er við fórum öll að hlæja þá sagði hún að hún hefði hugsað þetta um leið og hún sleppti orðinu - great minds think alike g...

Me and my girl - my girl and me

Við mæðgur brunuðum í Skorradalinn eftir að hafa staðið vaktina í Varmárskóla, gagnfræðihúsinu. Þar vorum við í smá fjáröflun fyrir Landsmót Skáta. Þjóðdansafélagsmenn frá öllum Norðurlöndunum gistu í skólabyggingunum og vorum við dyraverðir og sjoppukellingar í átta klukkustundir. Ma og pa tóku á móti okkur og fengum við kvöldverð a La móðir mín - alltaf best. En á sunnudaginn drifu þau sig af stað heim, fyrst einn hringur með kylfur og litla bolta. Við mæðgur urðum þá bara tvær eftir og létum fara vel um okkur. Heiti potturinn er vel nýttur. Það er frekar huggulegt að sitja þarna einn með sjálfum sér með i-pod í eyrunum og láta lesa fyrir sig :) Vatnið mátulega heitt til að maður geti setið þarna endalaust. Kem ekki inn með geðveikan hausverk, dösuð og vatnsþurfi. Milt og gott veður þó sólina vanti - þetta er bara verulega notalegt. Í gærkvöldi gerðum við það eina sem hægt var... við horfðum á úrslitaleikinn í HM, en ekki hvað ? Og auðvitað héldum við með sitthvoru liðinu. Sa...

Mér finnst rigningin góð...

Þegar það rignir og svo rignir meira og svo bara hellirignir og loks er demba, þá fer maður í pollagallann. Og vinnur rigningarvinnu. Gerðið úti í garði er orðið hreint og fínt - kláraði það í gær og nú er stéttin við pallinn að verða eins og hjá fólki :)   En nú er komið skárra veður og ég ætla í smá líkamsrækt... Later

Engin leið að hætta...

Veðrið var fullkomið í kvöld og því ekki hægt að sitja inni bara. Fórum aftur á línuskauta. Ákváðum að fara í Skarfagarða og skauta þaðan. Frábært plan. BH bar allt út í bíl og ég skoppaði eitthvað hérna inni, var búin að setja hunda í beisli og þau komin út í bíl... rauk svo út og hoppaði í bílinn. Hefði átt að taka skautana með :/ Svo það var brunað bara í Mos aftur og klukkan var orðin margt svo við ákváðum að fara heiman frá okkur og taka stóran hring í Grafarvoginn og heim aftur. Nítján kílómetrar. Það er allt í lagi. En munurinn er sá að hér eru endalausar brekkur, stífar niður og svo auðvitað frekar bratt upp aftur hinum megin. En þar sem við erum með rosa læri og rass þá er það í góðu lagi *hósthóst* Við Ronja erum góðar saman - mér líður voða vel með hana, hún er svo létt og meðfærileg. En það verður að segjast að ég er alveg til í rakkakvikindi líka - þeir eru töluvert meiri togarar. Það var þetta frábæra veður og gaman að horfa á útsýnið til allra átta. N...

Engin takmörk

Ég held að það skemmtilegasta sem ég geri sé að fara á línuskauta með voffakríli. Alla vega á sumrin... sleðinn kemur sterkur inn þarna líka, en hann er bara í boði á veturna. Við drifum okkur út eftir matinn - reyndar ekki fyrr en að ganga 22. Lögðum af stað frá Víkingsheimilinu og tókum góóóóðan hring utan um RVK, út á Seltjarnarnes og svo aftur í Austurbæinn. Undanfarna daga hefur verið heldur þungbúið en það hefur hangið þurrt. Kannski rétt dropað, jafnvel úði. En ekkert til að tala um þegar við höfum látið vaða og farið á línuskauta. En í þetta sinn ákvað einhver að hella yfir okkur öllu því sem við höfum misst af undanfarið. ÖLLU. Þegar við vorum komin í Nauthólsvíkina þá rigndi og rigndi og svo bætti bara í. Það var svo dimmt yfir og það rigndi svo rosalega að það var ekkert annað að gera en að hlæja að þessu. Við vorum þokkalega rennandi... ég var orðin blaut á tánum! En svo stytti upp og það var allt þurrt er við komum á Seltjarnarnesið - sól jafnvel smá, pínu...

Frú óþolinmóð

Gat ekki beðið lengur - Smá rok og úði er ég lagði af stað. Krossaði fingur og vonaði það besta... Vígði þessa áðan Og það gekk súper vel. Ákvað að vera bara með Ronju mína. Hún er létt og meðfærileg þessi elska. Hún var reyndar bara dáldið dugleg og ég þurfti öðru hverju að hemja hana en það gekk vel. Vinstri skautinn passar fullkomlega, þessi hægri er svona ívið of lítill. En ég held það sleppi. Við fórum 12 km - frekar erfið leið - og ég er ekki sár á fótunum. Tók aðeins í að rifja upp taktana. Það að bremsa niður brattar brekkur tók aðeins í. Smá beinhimnubólga að minna á sig... en þetta jafnaði sig ágætlega. Ég verð fljót að rífa þetta úr mér. Mér gekk vel að skauta upp brekkur, smá mæði - en hey það er eðlilegt. Hjólin á þessum eru 90 mm í stað 70 mm svo ég hafði smá áhyggjur af þessu. En þetta var svo mikið eeeekkert mál. Heilt ár síðan ég fór síðast á skauta svo það skipti engu máli. Ég er ekki frá því að það hafi verið auðveldara að ýta sér áfram á þessum en mínu...