Fara í aðalinnihald

Færslur

Fjörtíu

Það er sagt að allt sé fertugum fært... ég hef trúað því hingað til og nú sannreyni ég það næstu árin. Svo hlakka ég bara til því það er líka sagt að það sem fertugur getur gerir fimmtugur betur - þannig að það er bara allt uppávið. Later

Níu líf...

Þegar ég fer með hundana út í gerði á morgnana... svona um það bil sem þau eru að gera mig bilaða því þau hringsnúast í kringum mig þar til ég læt eftir þeim að fara út... þá nenni ég ekki að hafa þau öll í bandi. Úlfur fær að skoppa laus, hann er ekki að fara neitt. Það er búið að girða garðinn nánast allan. Þannig að hann kemst ekki út úr honum nema fara fram fyrir húsið. Laugardaginn 11. maí dreif ég þau út í garð, Leo og Ronja í taum en Úlfur skoppaði sæll og glaður eins og páskahéri út í garð, laus og liðugur. Er ég kem fyrir hornið hérna út í garði sé ég að það er köttur á bakvið gerðið... í garðinum okkar. Úlfur rauk beint fyrir aftan gerðið en sá ekki köttinn i hvelli. Ég kallaði á hann en í því sá hann greyið. Meðfædda veiðieðlið kikkaði inn á sekúndubroti og hann hugsaði ekkert - bara stökk á köttinn. Ég hélt að sjálfsögðu að litli anginn væri dauðans matur því hann stökk beint á hann og náði honum. Greyið hreyfði sig ekki... ekki fyrr en Úlfur sleppti honum þegar hann ...

Heimakær Úlfur

Fórum í Skorradalinn á laugardaginn var. BH var sveittur í vinnu við að bera 40 kg steypuklumpa með smá aðstoð frá pabba og Didda. Samtals voru þetta 17 stykki, hann bar þá flesta einn... það tók á. Síðan var mokað heilósköp, holur til að setja ferlíkin í. Tilgangur verksins er að þarna aftan við bústaðinn rísi pallur. Þar verður heitur pottur, sem nú er staðsettur, til bráðabirgða, á pallinum fyrir framan hús. Skemmst frá því að segja að okkur BH leið eins og heima hjá okkur þegar við fórum að sofa og heyrðum titringinn frá heita pottinum óma í hausnum á okkur. Nema þarna var allt miklu nær, hér heima er potturinn í næsta garði, hinum megin við næsta hús :/ Ég gerði fátt annað en að slappa af þessa helgi á meðan eiginmaðurinn púlaði og svitnaði fyrir okkur bæði. KBB dró Birtu vinkonu sína með sér á staðinn og ég held að þær hafi bara haft það ansi notalegt. Héngu inni meira og minna alla helgina í leiðinda veðrinu. Á laugardeginum rigndi ekki þrátt fyrir þungt skýjafar, en það var...

Do one thing every day that scares you...

Hann heldur bara að hann komist upp með þetta aftur og aftur... Ég fer að sjá í gegnum þetta og koma við einhvers konar vörnum. Veit bara ekki hvernig því það er alltaf ég sem þarf að labba heim ef ég stend mig ekki :/ Fórum á Langjökul á Uppstigningadag ásamt fríðu föruneyti. Kristín kom með okkur í bíl og hennar eðalhundar einnig. Hrannar var einnig með í för, sérlegur vélsleðaráðgjafi og eigandi. Farangur í meira lagi í bílnum, einhverjum töskum komið fyrir hjá tveimur vígalegum vélsleðum á kerrunni sem við drógum á eftir okkur (var súper kúl - í alvöru). Svo sátum við bara með allt í kringum okkur, sátt og sæl er við lögðum af stað eldsnemma morguns til að nýta daginn sem best. Halli og Olga voru á ofurjeppanum sínum með tíkurnar í skottinu og eitt myglaðasta barn sem ég hef séð lengi afturí. Minnti helst á mig og dóttur mína þegar við erum dregnar á rassgatinu framúr rúminu gegn vilja okkar eldsnemma morgund. Orri og Rósa komu líka, með prinsana sína. Diddi hinkraði eftir ok...

Auglýsingar

Umhugsunarefni... Hérna má sjá hvernig auglýsingar dynja á okkur daginn út og inn... það er umhugsunarefni hvað mörgum finnst ekki neitt athugunarvert við hvernig efni er framreitt ofan í okkur. Allt svo töff og flott og teprur sem gagnrýna svona uppsetningu - ég er tepra þegar kemur að svona fávitagangi. Fletti yfirleitt hratt yfir auglýsingar, les mjög sjaldan tískutímarit... þá bara blaða í gömlum blöðum á einhverjum biðstofum ef ég er ekki með bók með mér. En svona auglýsingar pirra mig og hafa alltaf gert. Ég þoli illa hvað konur eru passífar og "heimskar" þegar verið er að selja vöru... stundum lítur helst út fyrir að konugreyin séu til sölu. Var í auglýsingasálfræði í framhaldsskóla. Áttum eitt sinn að mæta með einhverja auglýsingu úr einhverju blaði... skipti engu máli hvaðan né um hvað. Kennarinn gat sett út á þær allar á sama veg - konur voru passífar og karlar ákveðnir og að gera eitthvað. Þ.e. allar nema eina... ég mætti með auglýsingu þar sem mynd var af n...

Alltaf flaggað fyrir bóndann

Við hjónin skelltum okkur fyrir hádegið í hlaupatúr. Ég var með plön... ætlaði að ljúka verkefni sem fyrir hlaupahópinn minn var sett - gott plan að hætti Arnars. Upphitun, hreyfiteygjur og aðalsett alveg ákveðið og niðurskokk og læti. Rakkarnir á myndinni horfðu á mig, allir þrír, og sögðu: "gleymdu því... við erum bara að hlaupa þetta" Ég átti ekki séns, BH hljóp áfram og Leo dró mig á eftir þeim Úlfi. Fórum sjö kílómetra og blésum ekki úr nös (var aðframkomin og varð að nota munn og nef... djók). Við svona hress í morgunsárið, fengum heimasætuna til að taka eina afmælismynd í tilefni dagsins. Eins og þið sjáið kom ekki að sök að þessi fallegi dagur væri ííískaldur því eins og Kristín benti á... þá erum við fáránlega heitt par ;) Er heim var komið tók KBB á móti pabba sínum, búin að flagga, með egg og beikon tilbúið... ég naut góðs af :) Þá var farið í að fínesera aðeins heimilið, sturta sig og undirbúa veitingar fyrir ofursvala gengið sem birtist hér um miðjan d...

Í vondum málum

Fór í gær út með BH og hundana að hjóla - fékk Ronju mína á mitt hjól. Nennum ekki að hafa hana með rökkunum þar sem hún dregur bara úr þeim og tefur. Er búin að vera til vandræða núna í nokkrar vikur. BH fór með hana og rakkana um daginn en henti henni upp í bíl til Tedda eftir um 1 kílómetra því ljóst var að hún var leiðinleg þennan daginn eins og oft áður undanfarið. Í gær var fyrsti túr eftir það. Og litla skottið var on fire - hljóp og dróg eins og berserkur. Ég var ekkert brjálað vel klædd því ég hélt ég þyrfti að hjóla alla leið. Sem betur fer varð mér ekki illa kalt - en þó aðeins miðað við ef ég hefði hjólað eins og ég ætlaði. Fórum að heiman að Öskju, bílaumboði, hittum þar Söru með þrjá hunda. Ég fékk því Rökkva með okkur Ronju í lið og þau voru svona hörku ágæt saman. Passaði bara að hafa Söru fyrir framan mig og þá er Rökkvi góður :) Varð að fylgjast vel með þessum kjánum því taumarnir voru tveir, ekki tvítaumur, og þau voru ekki í eins beislum. En þetta gekk eins og...