Fór í gær út með BH og hundana að hjóla - fékk Ronju mína á mitt hjól. Nennum ekki að hafa hana með rökkunum þar sem hún dregur bara úr þeim og tefur. Er búin að vera til vandræða núna í nokkrar vikur. BH fór með hana og rakkana um daginn en henti henni upp í bíl til Tedda eftir um 1 kílómetra því ljóst var að hún var leiðinleg þennan daginn eins og oft áður undanfarið.
Í gær var fyrsti túr eftir það. Og litla skottið var on fire - hljóp og dróg eins og berserkur. Ég var ekkert brjálað vel klædd því ég hélt ég þyrfti að hjóla alla leið. Sem betur fer varð mér ekki illa kalt - en þó aðeins miðað við ef ég hefði hjólað eins og ég ætlaði.
Fórum að heiman að Öskju, bílaumboði, hittum þar Söru með þrjá hunda. Ég fékk því Rökkva með okkur Ronju í lið og þau voru svona hörku ágæt saman. Passaði bara að hafa Söru fyrir framan mig og þá er Rökkvi góður :)
Varð að fylgjast vel með þessum kjánum því taumarnir voru tveir, ekki tvítaumur, og þau voru ekki í eins beislum. En þetta gekk eins og í sögu því við vorum ekki í umferðinni heldur á stígum úr alfaraleið á leið hingað í Mos. Og þau héldu bæði meira og minna strektu alla leið. Mjög skemmtilegt. Vildi að það væri hægt að stilla þessa tík mína á þetta mode alltaf :)
Það var fyndið að horfa á þau saman. Ronja svona fíngerð og grönn - fim eins og köttur, allar hreyfingar eftir því... og svo Rökkvi, schäfer (hvernig er þetta eiginlega skrifað ???) hundur. Ekki alveg jafn graceful og husky tíkin :)
Hann var samt flottur - stór þung, massíf skref - ákveðinn og öruggur áfram. Svo mikið yndi þessi Rökkvi.
Fórum 14 kílómetra og hundarnir áttu nóg eftir er við komum tilbaka :) En tíkin mín sýndi það og sannaði að hún getur þetta vel ef hún ætlar og er í stuði... bara ekkert mikið fyrir að láta okkur segja sér hvenær og hvert. Hún sem sagt er í vondum málum núna - því ég er hætt að vorkenna henni þegar hún lætur eins og aumingi.
Later

Ummæli