Hef oft pirrað mig á því hvernig tungumálið okkur er niðrandi gagnvart kvenkyninu, sem er helmingur þjóðarinnar - jafnmikilvægur helmingur og karlkyns meðlimir hennar.
Hef lengi reynt að tala um að væla eins og kettlingur t.d. frekar en að væla eins og kelling. Mér þykja kellingar nefnilega þó nokkuð misjafnar eins og þær eru margar. Svona eins og kallarnir - þeir eru æði misjafnir líka. Þekki þó nokkra vælukjóa þeirra á meðal, svona eins og ég þekki nokkra kvenkyns vælara líka.
Þoli illa þegar talað er um að hlaupa, sparka, kýla eða kasta eins og stelpa. Ég held að stelpur séu ekki verri íþróttaMENN en strákar. Held að enginn drengur hafi hlaupið hraðar en ég í mínum grunnskóla... kannski jafnhratt, ekki hraðar. Svo breyttist það nú... karlmenn eru víst þannig byggðir, alla vega flestir :) Ég var alla vega voðalega ánægð með mig í mínum íþróttum í gamla daga - þótti bara sæmilega frambærileg í því sem ég tók mér fyrir hendur í þeim efnum. Eftirminnilegast er þó þegar ég bakaði alla í hlaupi á frjáls íþróttaæfingu í Laugardalnum... og ég var ekki einu sinni að æfa. Bara aulaðist á þessa æfingu óvart. Man það því einhverjir gaurar urðu svekktir - verulega svekktir, gátu ekki leynt því. Viss um að þeir hefðu viljað hlaupa eins og stelpan í það skiptið ;)
Ég á virkilega erfitt með feður sem tala svona gagnvart dætrum sínum... þekki engan, myndi ekki vilja umgangast svoleiðis gaura!
Reyni að tala um barnshafandi konur, ekki óléttar eða ófrískar. Þær eru bara ekki veikar - þær bara bera barn undir belti... það er allt annað. Mér gengur þetta þó misvel - gleymi mér iðulega því tungumálið er algjörlega greipt í hausinn á manni.
Talandi um veikara kynið og sterkara kynið... hefur einhver heyrt um MAN-FLU - einmitt, ræðum þá aðeins hvort er veikara kynið ;)
Rakst á þessa grein og fannst þetta áhugaverð lesning - mættum alveg spá aðeins í hvað við segjum og hvernig við tölum. Margt þarna sem ég hef oft velt fyrir mér og rætt um við fólk, þá sem yfirleitt nenna að hlusta á röflið í mér. Annað sem ég hafði ekki endilega spáð í - en geri núna :)
Maður breytir ekki tungumálinu í einum grænum, en það er allt í lagi að hafa þetta í huga og breyta jafnt og þétt - þannig gerist þetta :)
Later

Ummæli