Fór með ma og pa og litlu sys og kaldhæðnu dóttur minni, sem kann ekki að skammast sín, í leikhús í kvöld. Fórum að sjá Mary Poppins. Þetta er þessi fínasta skemmtun, afskaplega vel gerð og stór sýning. Mér alla vega leiddist ekki í eina sekúndu. Er við vorum að koma okkur fyrir á þriðja bekk alveg út í enda vinstra megin ræddum við staðsetninguna aðeins. Þetta slapp alveg - við vorum sátt. Rétt þegar allir voru sestir á bekkinn, og sýningin aaaalveg við það að byrja, sé ég lítinn stubb koma trítlandi eftir sætaröðinni. Hann hélt á pappamáli, augljóslega að fara að henda því fyrir foreldra sína. Pirraði mig píííínu lítið að fólkið skyldi ekki bara geta klárað úr bollanum og sett það svo við fæturna á sér. En við stóðum upp fyrir snáða og vissum að hann kæmi aftur von bráðar.
Það stóð heima, hann kom aftur og við stóðum upp. SBK tók eftir því að hann gekk bekkinn nánast á enda og gerði athugasemd þar um við okkur hin. Sem auðvitað lyftum brúnum - litli maðurinn hefði átt að fara hina leiðina en lét í raun nánast allan bekkinn standa upp fyrir sér rétt áður en sýninginn hófst. KBB benti á að stubburinn hefði í raun átt að fara hina leiðina og fara svo fyrir framan fremsta bekk og ganga þá leið ef hann þurfti endilega að nota vinstri innganginn. SBK var svo góð að benda henni á að þar væri þröngt líka - fólkið upp við sviðið hefði líka þurft að standa upp fyrir honum.
Þá vildi hún að stubburinn hefði bara farið upp á sviðið, gengið eftir því og bara fílað sig þar.
LBK: Awww þú getur gert það :)
KBB: Nei ég er ekki TINY...
Við sátum hlið við hlið... hún leit á mig og sagði svo ... ÞÚ ættir að gera það !
Litla kvikindið aðeins of skylt föður sínum - ég hló of mikið. Er samt að spá í að senda hana út að sofa í Leirutanga 1b. Fyrir þá sem ekki vita hvar það er, þá er það hundakofinn úti í garði.
Við skemmtum okkur öll vel á sýningunni sem byrjaði klukkan 19 en var ekki búin fyrr en rúmlega 22.
Later

Ummæli