Fara í aðalinnihald

Færslur

Í vondum málum

Fór í gær út með BH og hundana að hjóla - fékk Ronju mína á mitt hjól. Nennum ekki að hafa hana með rökkunum þar sem hún dregur bara úr þeim og tefur. Er búin að vera til vandræða núna í nokkrar vikur. BH fór með hana og rakkana um daginn en henti henni upp í bíl til Tedda eftir um 1 kílómetra því ljóst var að hún var leiðinleg þennan daginn eins og oft áður undanfarið. Í gær var fyrsti túr eftir það. Og litla skottið var on fire - hljóp og dróg eins og berserkur. Ég var ekkert brjálað vel klædd því ég hélt ég þyrfti að hjóla alla leið. Sem betur fer varð mér ekki illa kalt - en þó aðeins miðað við ef ég hefði hjólað eins og ég ætlaði. Fórum að heiman að Öskju, bílaumboði, hittum þar Söru með þrjá hunda. Ég fékk því Rökkva með okkur Ronju í lið og þau voru svona hörku ágæt saman. Passaði bara að hafa Söru fyrir framan mig og þá er Rökkvi góður :) Varð að fylgjast vel með þessum kjánum því taumarnir voru tveir, ekki tvítaumur, og þau voru ekki í eins beislum. En þetta gekk eins og...

Burn

Fór með ma og pa og litlu sys og kaldhæðnu dóttur minni, sem kann ekki að skammast sín, í leikhús í kvöld. Fórum að sjá Mary Poppins. Þetta er þessi fínasta skemmtun, afskaplega vel gerð og stór sýning. Mér alla vega leiddist ekki í eina sekúndu. Er við vorum að koma okkur fyrir á þriðja bekk alveg út í enda vinstra megin ræddum við staðsetninguna aðeins. Þetta slapp alveg - við vorum sátt. Rétt þegar allir voru sestir á bekkinn, og sýningin aaaalveg við það að byrja, sé ég lítinn stubb koma trítlandi eftir sætaröðinni. Hann hélt á pappamáli, augljóslega að fara að henda því fyrir foreldra sína. Pirraði mig píííínu lítið að fólkið skyldi ekki bara geta klárað úr bollanum og sett það svo við fæturna á sér. En við stóðum upp fyrir snáða og vissum að hann kæmi aftur von bráðar. Það stóð heima, hann kom aftur og við stóðum upp. SBK tók eftir því að hann gekk bekkinn nánast á enda og gerði athugasemd þar um við okkur hin. Sem auðvitað lyftum brúnum - litli maðurinn hefði átt að fara hina ...

Rándýr

BH: Hvað er með hárið á þér ? LBK: I know BH: þú þarft að fara í klippingu LBK: I know - veistu hvenær ég fór síðast ? BH: Já... daginn fyrir brúðkaupið þarna LBK: sama dag og fermingarmyndatakan BH: já viku fyrir fermingu LBK: nei ekki alveg... var þarna á þriðjudeginum og ferminginn á sunnudeginum... það er ekki mánuður síðan ég fór í klippingu ! BH: já ég veit... þú ert high maintenace chick ! Þá hafið þið það... eins gott að gaurinn þéni vel, annars erum við í vondum málum. Spurning um að klippa það bara stutt stutt aftur næst... tími því samt ekki alveg :) Já eða bara græja sig til út í daginn, það myndi virka líka. Stundum er ég voða heppin að vinna þar sem ég vinn, mæti með hárið út í loftið og nánast á náttbuxunum ef ég er löt. Aumingja þeir sem vinna hérna þá daga samt... þeir eru samt svo kurteisir að þeir leyfa mér að láta svona... en ég fæ samt alveg að heyra það :) Ástæða leti minnar í morgun var einfaldlega sú að ég er að fara í leikhús í kvöld og nennti ek...

Magnað

Það er enginn harðari við okkur en við sjálf - ENGINN. Ég rifja stundum (mjög reglulega) upp það sem ég las fyrir þó nokkru síðan "Ef þú ættir vinkonu sem talaði við þig eins og þú gerir sjálf... myndir þú halda áfram að vera vinkona hennar ?" Mitt svar er alltaf nei - ég væri löööngu búin að týna símanúmerinu hennar og gleyma því hvar hún á heima - myndi ekki taka símtöl frá henni og aldrei nokkurn tíman hafa tíma til að hitta hana. En maður situr víst uppi með sjálfan sig svo það er kannski gott að reyna að breyta viðhorfi sínu til sjálfs síns markvisst - stundum tekst það ágætlega en ekki nógu oft og ekki nógu lengi. Ég er víst ekki ein um þetta - var að horfa á þetta myndband og fannst þetta lýsandi fyrir okkur flest. Við erum of neikvæð í eigin garð. Það væri gott markmið að hætta því ! Later

Að hlaupa eins og stelpa !

Hef oft pirrað mig á því hvernig tungumálið okkur er niðrandi gagnvart kvenkyninu, sem er helmingur þjóðarinnar - jafnmikilvægur helmingur og karlkyns meðlimir hennar. Hef lengi reynt að tala um að væla eins og kettlingur t.d. frekar en að væla eins og kelling. Mér þykja kellingar nefnilega þó nokkuð misjafnar eins og þær eru margar. Svona eins og kallarnir - þeir eru æði misjafnir líka. Þekki þó nokkra vælukjóa þeirra á meðal, svona eins og ég þekki nokkra kvenkyns vælara líka. Þoli illa þegar talað er um að hlaupa, sparka, kýla eða kasta eins og stelpa. Ég held að stelpur séu ekki verri íþróttaMENN en strákar. Held að enginn drengur hafi hlaupið hraðar en ég í mínum grunnskóla... kannski jafnhratt, ekki hraðar. Svo breyttist það nú... karlmenn eru víst þannig byggðir, alla vega flestir :) Ég var alla vega voðalega ánægð með mig í mínum íþróttum í gamla daga - þótti bara sæmilega frambærileg í því sem ég tók mér fyrir hendur í þeim efnum. Eftirminnilegast er þó þegar ég bakaði all...

Bleikt og blátt

Var að lesa þetta og skoða myndirnar og fékk smá sting í hjartað :/ Í alvöru ? Ég er að reyna að muna hvort herbergi barna minna hafi verið svona. Ég held ekki , vona ekki. Þrátt fyrir að strákaherbergið hafi vissulega verið málað blátt og stelpuherbergið var málað bleikt. Well - herbergið hennar var gult fyrst og veggborðinn með myndum af Bangsimon og félögum... gulur og grænn í grunninn. Mamman valdi það, ásamt föðurnum. En stelpuskottið var bleikara en allt bleikt... hvað á mamman að gera þá ? Strákapjakkurinn minn var meira rauður en blár. Uppáhaldsliturinn hans var rauður... alveg þar til hann áttaði sig á að sennilega væri blár meira málið - honum var sagt það. Fyrsta hjólið hann var rautt t.d. - hann valdi það sjálfur. Valið stóð á milli rautt eða blátt. Ég held í alvöru að mér hafi tekist að læða að þeirri hugmynd að börnunum mínum að allir litir regnbogans séu fallegir og gjaldgengir, hvort sem um dreng eða stúlku sé að ræða. Stúlkan er alla vega ekki svo bleik lengur... ...

*sigh*

Æ ég veit ekki... er 1705 ennþá ? Svona fréttir eru alltaf pínu hjákátlegar... svo man maður að þetta er ekki djók og þessir menn hafa áhrif :( Þessi viðhorf hljóta að fjara út á endanum... hvenær sem endirinn verður ! Later