Fara í aðalinnihald

Færslur

Voffa-fréttir

Í kuldanum síðustu daga hafa hundarnir á heimilinu hringað sig saman úti í gerði og haft hægt um sig. Maður skyldi ætla að þau myndu bara vilja vera inni í hlýjunni og hafa það náðugt. Nei ekki aldeilis. Þau byrja að betla út svona rétt fyrir hádegið og linna ekki látum fyrr en þau eru komin út í gerði. Stundum reynum við að svindla á þeim og hleypum þeim bara út til að gera þarfir sínar þar til við gefumst upp þegar hurðin er opnuð í fimmta sinn. Þá erum við svona búin að meðtaka það að þau séu ekki endilega í spreng lengur. Langar bara að komast út. En sem sagt þegar maður lítur út um gluggann sér maður tvo snúða hringaða saman. Stundum í sitthvoru horninu og stundum þétt upp við hvorn annan. En núna ? Nú er komið rok og smá snjófjúk. Þá liggja þau ekki hringuð saman lengur. Nei nú er setið uppi á kofa með nefið upp í vindinn og lygnt aftur augunum aðeins og unaðurinn tekinn inn fyrir allan peninginn. Þau eru svo flott þarna úti :o) Úlfur greyið er ekki alveg jafn duglegur að skipta ...

Random

Er svo ánægð og stolt móðir akkúrat núna. Var að skreyta piparkökur með afkvæmum mínum. Þessum sem líkjast föður sínum skuggalega mikið. Svo mikið að það sjá það allir. Fólk þarf að rýna aðeins betur í andlit þeirra og þekkja sæmilega til að sjá eitthvað af mömmu þeirra í þeim. Jújú ljósa hárið og bláu augun... en það er líka frá föðurnum svo það má alveg deila um það. En nú er það alveg á hreinu eftir kvöldið að þau eru bæði alveg jafn KLEPPTÆK og móðir þeirra. Klikk genin skiluðu sér alveg fínt alla leið og það virðist hafa verið nóg af þeim fyrir þau bæði. Það sem hægt er að hlæja og láta eins og kjánar við að spauta smá glassúr á nokkrar kökur. Og auðvitað var lagið tekið. Þegar diskurinn var búinn sem verið var að hlusta á nennti KEB ekki að standa upp og finna meiri tónlist og gaulaði því nokkuð fyrir okkur. KBB tók vel undir og er ekki hægt að segja annað en að þau SÖKKUÐU bæði all svakalega. Í engum takt við hitt héldu þau áfram, KEB eins og mjög vitskertur einstaklingur og KBB...

Dónaskapur?

Las frétt um Ómar Ragnarsson sem hefur tekið það að sér að vera sjálfskipuð bílastæðalögga okkar landsmanna og siðapostuli :o) Ég get ekki annað en verið sammála honum um að fullfrískt fólk á aldrei nokkurn tímann að leggja í stæði sem merkt er fötluðum. Við getum bara gengið og ættum að þakka fyrir það að vera með báðar fætur heilar. En nú er hann að agnúast út í fólk sem leggur í tvö stæði. Undir öllum venjulegum kringumstæðum er ég sammála. Auðvitað hlýtur einn bíll eitt bílastæði lögmálið að eiga við. Það er mjög pirrandi þegar maður sér fólk leggja bílum sínum illa þannig að maður getur ekki notað stæðið við hliðina á því. En málið er að bílastæði á Íslandi eru víða í ENGU samræmi við breidd margra bíla. Ég er ekkert að tala um risastóra ofurjeppa - eða jeppa yfirhöfuð. Margir nettir jeppar á götum borgarinnar. Hef reynslu af því að keyra bíla sem gjörsamlega fullnýta eitt stæði á stöðum eins og Kringlunni t.d. eða í bílastæðahúsum. Þannig er að þegar ég er búin að leggja í stæðið...

Sá á kvölina sem á völina

Íbúðin mín er frystiklefi akkúrat núna - orðið veeerulega svalt hérna hjá okkur og liðið allt að vakna og koma sér á fætur. Verður spennandi að heyra hvort lyktin sé í nefinu á þeim líka. Valið stendur á milli hressandi vetrarloftsins eða skítalyktar. Ég er ekki haldin neinum valkvíða... Alltaf þolað íslenskan vetur, nema þennan eina þarna um árið sem mér var ALLTAF kalt. En lyktin döh niii er of klígjugjörn til að höndla hana *hrollur* Já BH er ekki haldinn valkvíða heldur... var að koma hérna inn KULDASKRÆFA númer eitt á Íslandi. Byrjaði á því að loka glugganum í stofunni, tjáði mér að það komi svo kalt inn :o/ Later

Fáviti

Maður gefur hundunum sínum ekki nautabein á daginn. Passar svo ekki að tíkin einoki ekki bæði risastóru stykkin. Lokar þau inni kl. 2:30 að nóttu og setur svo headphones í eyrun og sofnar við sögu. Sérstaklega ekki þegar maður er mamman, húsmóðirin á heimilinu :o/ Do the math... Later ps bara svo fegin að þau voru ekki laus í íbúðinni !

Tvíburar

Stjörnuspáin mín í dag á mbl.is: Það er undravert, hversu miklu má afkasta, þegar menn eru ákveðnir í að ná árangri. Allt rugl flækir málin og er tímasóun Ég er greinilega ekki nógu ákveðin... spurning um að breyta því - NÚNA. Er að vinna í því as I write :o) Later

Heimsyfirráð eða dauði

Vorum í eldhúsinu að ná okkur í eitthvað í svanginn svona þegar leið að hádegi. Ég er búin að vera eins og Grýla hérna með allt draslið sem aðrir fjölskyldumeðlimir dreifa eins og glimmeri um allt hús. Og nei ég er alls ekkert pirruð á mínu dóti og drasli þar sem það er allt skipulega sett í óeiðuröð á alveg ákveðna staði og ég veit alveg hver kemur til með að taka það á endanum. LBK: Á þessi hjólahjálmur að vera þarna á eldhúsborðinu? BH: Já LBK: hmm ég umorða þetta þá - TAKTU hjálminn af borðinu og gakktu frá honum BH: Ég vil hafa hann hérna og þú þarft ekkert alltaf að ráða LBK: jú ég ræð hérna... BH: Það er best... hérna hélt ég að hann myndi segja að best væri að hafa jafnvægi á hlutunum BH: ... að ég taki þá bara hjálminn og setji hann í þvottahúsið Úlfur náði sér í lítið bein í gær sem Ronja VARÐ að fá. Og það strax - núna. Hann lá í bælinu og hún stóð og starði á hann. Ýlfraði nett svona til að minna hann á að hún væri að fylgjast með. Ég reyndi að vekja áhuga hennar á öðru bei...