Las frétt um Ómar Ragnarsson sem hefur tekið það að sér að vera sjálfskipuð bílastæðalögga okkar landsmanna og siðapostuli :o)
Ég get ekki annað en verið sammála honum um að fullfrískt fólk á aldrei nokkurn tímann að leggja í stæði sem merkt er fötluðum. Við getum bara gengið og ættum að þakka fyrir það að vera með báðar fætur heilar.
En nú er hann að agnúast út í fólk sem leggur í tvö stæði. Undir öllum venjulegum kringumstæðum er ég sammála. Auðvitað hlýtur einn bíll eitt bílastæði lögmálið að eiga við. Það er mjög pirrandi þegar maður sér fólk leggja bílum sínum illa þannig að maður getur ekki notað stæðið við hliðina á því. En málið er að bílastæði á Íslandi eru víða í ENGU samræmi við breidd margra bíla. Ég er ekkert að tala um risastóra ofurjeppa - eða jeppa yfirhöfuð. Margir nettir jeppar á götum borgarinnar. Hef reynslu af því að keyra bíla sem gjörsamlega fullnýta eitt stæði á stöðum eins og Kringlunni t.d. eða í bílastæðahúsum. Þannig er að þegar ég er búin að leggja í stæðið og jafnt er að hvítu línunum frá báðum hliðum, þá er ekki hægt að opna hurðina almennilega. Svo einfalt er það. Þannig að ekki aðeins er maður að verja sinn bíl fyrir hnjaski frá misvitru liði heldur einnig bíla annarra. Fólk með börn eða farangur verður að geta opnað hurðirnar almennilega til að athafna sig á stæðinu. Ég smokra mér út úr bílnum mínum í bílastæðahúsum, klíni mig jafnvel út ef drullan lekur af druslunni og hræinu við hliðina á mér.
Endurtek og ítreka að þetta á ekki bara við risastóra bíla - stærri gerðir af Toyotu, Volkswagen, Benz, BMW o.s.frv. passa illa í þessi stæði. Fólk er að klöngrast út með hálfopna (lokaða) hurð. Og þeir sem vilja ekki beyglur á bílana sína reyna því að koma í veg fyrir að hurð sé skellt utan í hjá þeim.
Ég held að þeir sem gefa út staðla fyrir stærð bílastæða ættu að byrja á því að opna augun og endurskoða málið. Kannski fólk myndi hætta að freistast til að taka tvö stæði til að "verja" bílinn sinn, eða hreinlega bara komast út úr bílnum sínum án vandræða. Í Florida þarna um árið þegar við keyrðum "fína" Cadillac-inn, sem er ekki alveg svo lítið eintak, áttum við ALDREI nokkurn tímann í vandræðum með að leggja í eitt stæði og komast út úr bílnum með barn og buru. Kaninn er alveg með það á hreinu að það er ekki nóg að leggja bílnum, maður þarf að komast út líka og sinna erindum sínum.
Ég reyndar lendi sjaldnast í vandræðum, enda ekki með smábörn lengur og legg ekki í stæði sem mér líst ekkert á. Svo legg ég yfirleitt bara lengra í burtu þegar ég versla í matinn eða fer í verslunarmiðstöðvar. Er ekki ein af þeim sem sveima í korter til að fá stæði við dyrnar. Fljótari bara að leggja skrípinu og labba smá spotta :o) Ég kann nefnilega ekki við að taka tvö stæði en mikið skil ég þá vel sem freistast til þess stundum ! En ég hef alveg komið að bílnum mínum og þurft að klöngrast inn farþegamegin til að komast undir stýri... verð BRJÁLUÐ þegar það gerist því það er ekki svo auðvelt í bílnum okkar :o) Og þetta gerist þar sem stæðin eru svo þröng að þau eru bara fyrir smábíla, eins og stæðin við Mjóddina þarna bíómegin, þau eru fáránlega mjó finnst mér. Þar legg ég lengst í burtu og labba frekar en að troða mér þarna nálægt hurðinni því maður veit aldrei hvaða sauður leggur við hliðiná manni :o) Tek það fram að bíllinn okkar er ekki svona SUPERSIZE CAR - alls ekki. Jafnbreiður og Benz fólksbíll.
En svo getum við tekið bara Grikkina á þetta, eða Parísarbúa... goðsögnin um að allir bílar þar séu dældaðir. Hafa það bara eins hérna :o)
Later

Ummæli