Fara í aðalinnihald

Heimsyfirráð eða dauði

Vorum í eldhúsinu að ná okkur í eitthvað í svanginn svona þegar leið að hádegi. Ég er búin að vera eins og Grýla hérna með allt draslið sem aðrir fjölskyldumeðlimir dreifa eins og glimmeri um allt hús. Og nei ég er alls ekkert pirruð á mínu dóti og drasli þar sem það er allt skipulega sett í óeiðuröð á alveg ákveðna staði og ég veit alveg hver kemur til með að taka það á endanum.

LBK: Á þessi hjólahjálmur að vera þarna á eldhúsborðinu?
BH: Já
LBK: hmm ég umorða þetta þá - TAKTU hjálminn af borðinu og gakktu frá honum
BH: Ég vil hafa hann hérna og þú þarft ekkert alltaf að ráða
LBK: jú ég ræð hérna...
BH: Það er best...

hérna hélt ég að hann myndi segja að best væri að hafa jafnvægi á hlutunum

BH: ... að ég taki þá bara hjálminn og setji hann í þvottahúsið

Úlfur náði sér í lítið bein í gær sem Ronja VARÐ að fá. Og það strax - núna. Hann lá í bælinu og hún stóð og starði á hann. Ýlfraði nett svona til að minna hann á að hún væri að fylgjast með. Ég reyndi að vekja áhuga hennar á öðru beini - miklu stærra. Hitt var bara svona sýnishorn, gott fyrir tjúa! Hún leit ekki í áttina að mér einu sinni. Hélt bara áfram að stara Úlf niður og beið pollróleg.

Á endanum gafst hann upp. Nennti ekki að liggja þarna lengur og fann eitthvað annað meira áhugavert og um leið stökk hún af stað. Fékk það sem hún vildi.

Svona er þetta hérna hjá okkur - tíkurnar bara ráða. Við Störum herramennina okkar í klessu þar til þeir átta sig á því að best er að hafa okkur góðar :o)

Later

Ummæli

Olga sagði…
Það gengur allt betur ef þeir bara hlýða- og það strax :)
Lóa Björk sagði…
Það er það sem ég hef alltaf sagt :o)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...