Fara í aðalinnihald

Færslur

Heima er best

Er komin heim - hver hefði trúað því ? Ég er svo hress að ég svíf um á bleiku skýi - engin ógleði, ekkert lyfjamók og Höskuldur skrifaði ekki einu sinni lyfseðil fyrir verkjalyfjum. Bara taka Panodil eða Paratabs eftir þörfum. Ligg í fína rúminu MÍNU og hef það nice - horfi á Klovn með KBB. Vildi óska að ég hefði átt þetta rúm í síðustu tvö skipti samt líka. Þokkalega sem það hefði verið gott því þá virkilega þurfti ég á því að halda. En það er búið og nú bara lítill skurður, þvert á hálsinn reyndar í þetta sinn. Það var ekki skorið ofan í gamla örið eins og síðast því æxlin/eitlarnir voru töluvert aftar og ofar. Þannig að nú er ekkert sárt að borða eða neitt. Andaði sjálf í aðgerðinni, voru bara með öndunarvél á kantinum tilbúna ef út í það færi skilst mér. Minns er sumsé kominn heim byrjuð að rífa kjaft og skipa fyrir :o) The Boss

Tíst...

Gengur ágætlega að gera það sem ég vil vera búin með fyrir miðvikudaginn. Sultaði í gær og kláraði það. Þreif í dag, þó ég viti alveg hvernig þetta verður hjá mér á morgun - skítugt. Nú bíður mín lopapeysa sem ég á aðeins eftir að festa tölurnar á. Græja það núna bara - glápi á eitthvað í sjónvarpinu á meðan. Á morgun þarf ég að klára að græja allt sem viðkemur Danmerkurferð frumburðarins. Svo þarf líka að klára allt sem heitir mánaðarmót hjá Rögg og hérna heima. Ætla í garðinn á eftir líka og eftir matinn. Ekki veitir af - aðeins smá andlitslyfting áður en ég fer og verð óvinnufær í smá tíma. Hugsa að ég láti öðrum fjölskyldumeðlimum eftir að slá grasið. Sé til. BH er nú ekki byrjaður á því sem hann ætlar að græja fyrir mig. En það verður vonandi gert á eftir. Veit af fenginni reynslu að ég get ekki lesið uppdópuð og vitlaus að drepast í hálsinum. Þannig að ég dreif mig á bókasafnið og tók hljóðbækur. Maður verður að bjarga sér. Því miður sé ég ekki að ég geti eða nenni að hafa hjá mé...

Rabarbari

Er að sulta loksins - ætlaði að vera löngu búin að þessu. Setti fimm kg í pott og nú er bara að sjóða þetta og þrífa krukkurnar. Koma þessu svo í krukkur og þá erum við góð með rabarbarasultu fyrir árið fjölskyldan. Ég á hins vegar svona 15 kg í viðbót af rabarbara. Búin að taka hann upp og skera af honum endana. Ef einhver vill fá í sultu eða pie þá er hinn sami velkominn og má taka eins og hann vill á meðan birgðir endast. Það sama á við í haust þegar rifsið er tilbúið. Ég þarf svona 3-4 kg fyrir árið, jafnvel tvö. En á trjánum eru svona 20+ kg svo það eru allir velkomnir á meðan eitthvað er á trjánum, svo lengi sem ég fæ mín 3 kg lágmark ;o) Húsmóðir í sveitinni

Awesome

Fórum í morgun áleiðis að Botni í Hvalfirði. Hundar og menn spenntir að hefja gönguna. Ég var nú aðeins svona á nálum með allt þetta upp í móti. Er ferlega mikill ræfill í að ganga upp - get gengið endalaust á jafnsléttunni. Verð líka að segja að mér fannst skemmtilegra og auðveldara að fara niður þrátt fyrir að Ronja mín var mjög dugleg í toginu. Fórum vinstra megin við gilið upp. Vel bratt á köflum og geggjað útsýni og gljúfrið magnað. Endalaust hægt að dást að náttúrunni. Maður verður samt að vera vakandi og horfa fram fyrir sig og niður fyrir sig til að vera með á nótunum. Fylgjast með voffanum sínum sem er bundinn við mann. Erfitt að ganga upp sums staðar en vel þess virði. Komum að ánni uppi og ætluðum að fara yfir hana en sáum fljótlega að erfitt yrði að komast upp á fjallið hinum megin. Svo við gengum áfram upp okkar megin og fórum yfir ánna ofar. Eina sem ég gat hugsað var ÓNEI meira fjall hinum megin við ánna - erfitt, er að deyja. Fæturnir á mér bera mig varla... En það var ...

Í morgunsárið

Er að hlusta á Bylgjuna - Kristinn H. Gunnarson, fyrrverandi þingmaður, er að tala við þáttastjórnendur og gaur sem ég veit ekki hver er. OMG er maðurinn for real - var hann í alvöru á þingi. Hártoganir og orðaleikir í kringum lán og lánasamninga eru ótrúlegir. Maðurinn á hagsmuna að gæta - það hlýtur að vera því hann er sannfærður um að fólk vilji ekki borga lánin sín tilbaka. Bölvað pakkið vill bara borga það sem það tók að láni með eðlilegum vöxtum. Af hverju getur fólk ekki bara borgað tvöfalt það sem það tók að láni? Hann er bara ekki að skilja þetta. For crying outloud þessir kjánar allir eru að gera mig gráhærða. Dáldið svona eins og útlendingarnir allir - hátt og lágt settir - sem telja að Íslendingar vilja ekki borga krónu í þennan IceSave drullupoll. Þrátt fyrir að margoft hafi verið sagt að Íslendingar ætli að bera þær byrðar en vill að samið sé um vexti þannig að við eigum kannski séns. Er líka gapandi bit að lesa sumar sögurnar af fólki sem tók lán á lán ofan, atvinnulaust...

silly people

Hver sagði að Ronjan mín vildi ekki draga og væri bara drottning og allt það? Mín er sko eitthvað að sanna sig. Fórum Úlfarsfellið um daginn með Viktori og Sisku - Alexandra og Friðrik ásamt Spörtu og Töru komu líka upp en fóru niður svo aftur að bílastæðinu. Við hin gengum yfir og niður hinum megin og að Reykjalundi - þar var bíllinn hans Viktors og við gátum keyrt til að ná í bílinn okkar. Gengum 7 km á rúmum tveimur tímum. Ronja dró bara fullt á leiðinni upp og uppi og svo niður aftur, það var verra. Mátti hafa mig alla við að halla mér aftur til að vega upp á móti hressu tíkinni minni. Ánægð með hana. En sá líka að ég fer nú sennilega seint með hundana mína báða ein þarna upp eða upp eitthvað annað. Fer þá sennilega rassgatinu niður aftur því Úlfur gefur enga miskun og Ronja er að draga stíft líka. Hafði ekkert hreyft þau í dag og ákvað að draga KBB með mér í hjólatúr með þau til að vera fljótari og komast heim í rúmið. Er duldið þreytt svona í þessum útburði á morgnana en að fara ...

Note to self...

ALLTAF AÐ VINNA ALLT Í TÖLVU STRAX. Tók aðeins lengri tíma en ég gerði ráð fyrir að setja handskrifað úr stílabókinni í Excel hjá mér :o/ Á ennþá eftir tvær kvinnur. Og ég sem ætlaði að klára það í gær og then some. Rabarbarinn hefur það ennþá gott úti í garði. Geri ráð fyrir að grípa hann inn í dag. Fór samt til mömmu í gær til að vinna í lopapeysunni. Endaði þannig að hún saumaði niður listann fyrir mig því ég var bara ekki að gera þetta almennilega - ég og mínar tvær vinstri hendur og tíu þumalfingur - damn it. en nú á ég aðeins eftir að sauma niður listann að innan, fela nokkra enda (búin með 99% af þeim) og festa tölur og þá er peysan tilbúin til að pressa hana og daman getur fengið hana. Ef hún er ekki vaxin uppúr henni. Byrjaði á henni í febrúar. Kjánalegt að hafa hana svona lengi ofan í tösku án þess að gera nokkuð! Verð duglegri næst að halda áfram. Bar út með KEB í morgun - fín aðferð til að koma mér á fætur. Nú klára ég að slá inn í Excel og ríf upp rabarbarann og sé til hvo...