Fara í aðalinnihald

Færslur

Hamingjuóskir

Amman mín á afmæli í dag - 88 ára gömul - geri aðrir betur :o) Hún býr enn heima hjá sér og alltaf svo notalegt að kíkja í heimsókn í Miðtúnið. Aðeins orðin þreytt í fótleggjunum og nú ber aðeins á því að hún sé byrjuð að gleyma atburðum. T.d. man ekki eftir því að KEB fermdist síðasta vor - enn meira hissa að sjá myndir af sér í veislunni því hún man ekkert eftir að hafa verið þar. En engu að síður fullfær um að sauma pínuponsu spor til að búa til skemmtilegar myndir, pússlar risapúsl og hefur ekkert fyrir því, ræðir heimsmálin og hefur skoðun á öllu, les heilmikið og fylgist vel með. Vona að ég verði svona flott 88 ára kerling með hvítt hár - (hún kallar sig alltaf kerlingu). Til hamingju með daginn amma mín :o)

Snilld

Hvernig er það - er rússneski björninn enn í hýði?? Það er bara BURST í gangi. Sit hérna að færa bókhaldið, hvernig ætli vaskurinn verði núna hjá mér? Einbeitningin er meira svona á sjónvarpinu í augnablikinu. En þar sem spennan er ekki alveg að fara með mig þá ætti þetta að sleppa :o) Sá auglýsingu fyrir heimavörn hérna í hléinu, karlar á leið í sjóinn að synda. Allt í einu fannst mér það pínu spennó - ég er alla vega búin að vera dugleg að safna einangrun í vetur. Spurning um að prófa bara - mér finnst ekkert alveg leiðinlegt í sjónum, því meiri öldur því betra. Svo er náttúrulega engu líkt að fara undir yfirborðið og skoða lífið í sjónum. Það er svo frábært - ætti bara að fara að kafa aftur og láta vaða hérna við Ísland. Skilst að það sé nóg að sjá hér og skoða :o) Well leikurinn að byrja - best að senda góða strauma yfir hafið til Vínar svo þeir haldi þessum snilldarleik áfram :o) Later

ÁFRAM ÍSLAND...

Held að ég þurfi hjartastyrkjand, róandi og kvíðastillandi áður en yfir lýkur. Orðin ansi þreytt á að landsliðið okkar spili snilldarleiki og endi alltaf í jafntefli - en það er þó betra en tap. Var að fara á límingunum síðustu mínútuna áðan á mót Króötum - Björgvin landsliðsmarkvörður er hetjan mín núna :o) Until next time...

Úlfur í Mos

Var hérna heima í dag þegar Úlfur byrjar að spangóla þvílíkt ámátlega hérna úti - kíki á þau og hann situr á kofanum og teygir höfuðið upp og gólar út í loftið. Er til eitthvað skemmtilegra en að eiga úlf í garðinum sínum? Þau voru nú ekki til fyrirmyndar í dag skötuhjúin hérna í 1b. Heyri allt í einu brjáluð urr og læti. Opna út á pall og hvæsi á þau, það er alltaf nóg til að þau hætti. Ekki í þetta sinn þó því þau heyrðu ekkert í mér, allt of upptekin við að kála hvort öðru. það eru bein þarna úti sem þeim þykja spennandi og grunar mig að Úlfur hafi fengið nóg af því að Ronja einokar þau eða svona leyfir honum að naga í pínu stund þegar henni hentar. Það er jú bóndadagurinn og því sjálfsagt að bóndinn fái að hafa sitt í friði, þó ekki nema þennan eina dag og kannski afmælisdaginn líka. Þau hlustuðu ekkert á mig þó ég væri komin út á pall, út í garð, uppað gerðinu, inn í gerðið. Með sitthvort bananabúntið í eyrunum og föst saman á andlitunum. Ronja var búin að bíta sig fasta á neðri k...

Kabúmm

Ég verð alltaf dálítið pirruð þegar ég heyri eða les fréttir um kjána sem búa sér til sprengjur úr púðri - rörasprengjur og þvíumlíkt. það er alveg vitað hversu alvarlegar afleiðingar þetta getur haft í höndum kjána sem ekki kunna með þetta að fara. Og það sannast ítrekað með því að þetta springur í höndunum á þeim. Oft eru þetta óharðnaðir unglingar sem finnst þetta mjög spennandi og sniðugt. Þetta eldist nú yfirleitt af þeim samt sem betur fer. Þrátt fyrir að hlakka ekki yfir óförum þeirra sem svo óheppnir eru að sprengja sig í tætlur þá verð ég víst að viðurkenna að ég hef litla samúð með þessum gaurum. Auðvitað er frábært þegar betur fer en áhorfir í fyrstu. En því miður fer ekki alltaf vel. Aumingjans vitleysingurinn sem liggur nú sofandi á spítalanum á ekki mína samúð - hann getur sjálfum sér um kennt og hann er orðinn fullorðinn. 23 ára gamall og enn að fikta með flugelda til að búa til sprengjur. Ég vona að hann nái bata en samkvæmt fréttum þá verður hann sennnilega ekki heill ...

Ást er...

Afi kaldi (Baldvin) og amma Lilja eiga 60 ára brúðkaupsafmæli í dag - geri aðrir betur á þessum síðustu og verstu (hjónabands)tímum :o) Í tilefni dagsins ætla gömlu hjónin ásamt börnum sínum og mökum að drífa sig út að borða og hafa það huggulegt. Hversu margir á mínum aldri munu fagna þessum áfanga þegar þar að kemur? Ég ætla að giska á..... hmmm ekki svo margir :oþ Later

Hressandi

Er að reyna að hypja mig út - það er langt síðan veðrið hefur verið svona "skemmtilegt" er ég þarf að drífa mig út með hundana. En ætla að drífa mig áður en það versnar - á víst að bæta í vindinn seinnipartinn svo það er ekki eftir neinu að bíða... :o) Ef ekkert heyrist af mér eftir tvo tíma eða svo þá hef ég fokið út í veður og vind, vinsamlegast leitið í þá átt sem Kári blæs - vona bara að það sé ekki á haf út :o/ Later