Á hvolpanámskeiðinu sagði annar leiðbeinandinn við mig að það væri alltaf einn hrekkjupúki á hverju námskeiði og að við ættum þennan eina í þetta sinn. Við BH glottum og vorum mjög hissa - hvað segirðu, okkur grunaði það nú ekki :o) Ég er samt ánægð með hana - hér var allt í drasli í gær. Við SBK dreifðum úr okkur með föndurdót og vorum eitthvað að þykjast, eða ég var að þykjast hún var að búa til rosalega flott jólakort. SBK hafði orð á því að henni þætti merkilegt að Ronja léti þetta allt saman í friði bara. Jú ég hef ekki staðið hana að því að tæta neitt þó það sé drasl á gólfunum, skórnir okkar og flíkur hafa sloppið alveg hingað til. Hún fær bara sitt nagdót og hefur látið það duga. Það á ekki að tala um svona - bara vera ánægður með ástandið og þegja. Í morgun þegar við KBB vorum að taka til hérna hjá okkur kom ég að Ronju með Celebration nammimola í kjaftinum - alsæl með súkkulaðið að bryðja pappírinn utan af. Reif þetta útúr greyinu sem var ekki ánægð. Mundi að það má ekkert ve...