Skóli á eftir - fara með KEB í tannréttingar - lesa og læra. Hætt að hanga yfir bíómyndum allann daginn, hætti því reyndar fyrir helgi. Lét taka sauma áðan á heilsugæslustöðinni, fékk að bíða í hálftíma eftir hjúkrunarfræðingnum. Merkilegt hvað tími manns er einskis virði sums staðar. BH ætlaði að taka saumana fyrir mig en það klikkaði hjá okkur svo ég dreif mig bara og borgaði 1000 kall fyrir það. Hefði þurft að borga 2000 á spítalanum þannig að ég græddi smá, það fer upp í lesheftið sem ég kaupi á eftir fyrir skólann. Sat og beið eftir hjúkkunni og hlustaði á væl í krakkagreyi inn á einhverri læknastofunni. Móðureðlið eitthvað kikkaði inn því ég var að því komin að fara og ná í barnið sem kallaði ámátlega á mömmu sína - Svona "bjargaðu mér mamma mín" væl, ég höndla svoleiðis ekki mjög lengi. Veit ekki hvað þeir voru að kvelja krílið og hugsaði að stundum þarf vont til að gera betra, en það var bara ekkert að hjálpa, mig langaði svooo mikið til að ná í barnið og bjarga því f...