Fara í aðalinnihald

Snobb ?

Fórum í gær til að leyfa hundunum okkar að hlaupa lausum. Leit út um gluggann og sá þetta líka fína veður. M.a.s. snjóaði aðeins. Vorum samt vöruð við að það væri ekki skemmtilegt veður á Suðurlandsvegi og þar með ekki heldur á Nesjavallavegi, þar sem okkar ferð var heitið. Við vorum því við öllu búin. Vissum að sennilega myndum við ekki ná að keyra alla leið þangað sem við helst vildum en ákváðum að sjá hvernig aðstæður voru.

Er við vorum komin áleiðis var okkur ljóst að okkar bíll myndi ekki hafa það lengra en við vorum komin. Svo við ákváðum að snúa bifreið vorri við og lögðum á "auða" götuna og hleyptum hersingunni út. Sama gerðu Olga og Halli. Við vorum minnt á það þarna hvernig vetur eru á Íslandi þegar vind hreyfir. Það var vont að fá snjórigninguna í andlitið og við óðum sums staðar snjó uppfyrir hné út í móa. Hundarnir þurftu smá tíma til að átta sig. Það var mjög fyndið að sjá þau hlaupa og endastingast á nefið þegar snjórinn gaf sig. Við röltum þarna með þau í klukkustund tæpa og komum svo aftur að bílunum tilbúin í heitt súkkulaði og smákökur.

Ég var blaut inn að beini. Jakkinn minn blautur í gegn og flíspeysan vel rök. Var í skíðabuxum sem halda ekki vatni og því blaut í gegn fyrir ofan hné, legghlífarnir héldu þurru þar fyrir neðan. Ég var minnt á það þarna af hverju ég er að safna mér fyrir rándýrum hlífðarfötum frá annað hvort Cintamani eða 66°N - RÁNDÝRUM. Maður er þurr í jakka og buxum frá þeim eftir svona útiveru í íslenskri veðráttu - ekki kaldur og hrakinn þegar maður kemur inn í bíl. Mér er aldrei kalt fyrr en ég þarf að setjast inn í bíl eftir að hafa skoppað úti í slagviðri. Svo nú er bara að harka af sér og safna meira til að enda í svona fínum útigalla :o) Verst að þetta drasl fer aldrei á útsölu.

Þrátt fyrir að hafa lagt bílnum á útpældum stað og passað súper vel að enda ekki föst þarna... þá vorum við föst er við ætluðum heim á leið. Það skóf svona skemmtilega undir bílinn að framan að við komumst tvo sentimetra í blautum þungum snjónum. Þetta er svona helsta ástæða þess að efst á óskalistanum mínum er breyttur Toyota Land Cruiser á 35 tommum (eða meira) á meðan hinar mömmurnar vilja einhverja ofurmömmu bíla til að koma sem flestum ormum þar inn.

Halli kippti okkur úr þessum vandræðum á sekúndubroti, var ekki meira mál en það. Bíllinn bara lak af stað án nokkurra vandræða með smá aðstoð frá tröllinu. "Langar í Land Cruiser á 35 tommum" *dæs* Var ég búin að nefna það ?
Komumst heim í heitt súkkulaði og smákökur fljótlega og það var hrikalega gott :o)

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Það er ekki snobb að vilja alvöru gæði...í fötum og bílum :D
jú, ok... kannski flokkast þetta undir snobb en það er gott að vita hvað maður vill OG það eru góðar ástæður fyrir því afhverju. Stundum er það líka bara þannig að "merkið tryggir gæðin".

En annars voru kökurnar þínar hættulega góðar! Er enn að hugsa um þær...namminamminamm!
ORB
Lóa Björk sagði…
Við erum svo snobbaðar :) mmm kökur....

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...