Fara í aðalinnihald

Mjá

Ég smeygði mér í svörtu ofursvölu coldgear spandex hlaupabuxurnar, nýja anita toppinn, svarta spandex ofursvala hlírabolinn, svarta ofursvala drifit peysuna og malaði lágt er ég klæddi mig í nike bláa og hvíta jakkann yfir. Það var eina stílbrotið því ég fílaði mig eins og CatWoman í öllu svörtu og súperþröngu.

Nú vantaði bara ipodinn og beislið um mittið - því var reddað - komin í sokkana og skóna. Úlfurinn kominn í beislið og við Leloo vorum ready út í myrkrið. Það þarf aðeins að ala upp í honum dráttareðlið... þ.e. að hann eigi að vinna þegar við erum saman á hlaupum eða á hljóli. Hann er dáldið á þefvaktinni ennþá þessi elska. Þarf að ná honum í að toga mig áfram - það vantar ekki kraftinn þegar eitthvað áhugavert er framundan.

Hljóp þessa standard fimm kílómetra og líður vel á eftir - ekki að skemma að ég er búin með alla vinnu til að borga virðisaukann á morgun og ég get sofið róleg.

Enn og aftur þarf ég að éta ofan í mig það sem ég hef áður fullyrt - það er opinbert - gellan er komin í spandex hlaupabuxur og ekkert pils til að hylja bossann. Þess ber að geta mér til varnar að það var myrkur og rassinn er rosalegur eftir sumarið - erum að tala um stál gott fólk... STÁL. Já eða það var alla vega myrkur ;o)

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Halda sé!!! Buns of steels :) HMS
Nafnlaus sagði…
...gleymdi ... kona ertu ekki að kafla í öllu þessu ? :) !
Lóa Björk sagði…
ekki núna þegar það er pínu svalt... en jú ef það er sól og logn þá myndi ég vera í færri flíkum :o)

Þetta er allt drifit klæðnaður og andar vel, þannig að ég er alveg góð :o) Þetta er svona "vetrargallinn"

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...