Er ekki eins dugleg að drífa mig út að hlaupa núna eins og í sumar. En fer samt lágmark tvisvar í viku og það er alltaf jafn hrikalega hressandi þegar heim er komið aftur.
Hljóp með Ronju og Úlfi síðast liðinn föstudag í öskrandi roki og úrhelli. Var ekki að nenna út en ákvað að vera Íslendingur og skellti mér í gallann. Það var ekki næstum eins slæmt eins og það leit út fyrir að verða. En aðalatriðið er að koma heim aftur og fara beint í heita sturtu. Brrr annars verður manni illa kalt.
Var að skoppa með þau áðan í þessu líka frábæra veðri. Ekkert verra þó það sé aðeins kalt úti. Maður græjar sig bara í kisugallann og drífur sig af stað. Ég fer bara þessa standard fimm kílómetra. Spurning um að auka aðeins í ef ég læt verða af því að hlaupa markvisst. Það er á stefnuskránni :o)
Annars er líka á stefnuskránni að klára göngupilsið sem ég er að prjóna. Ofursvalt og ég á bara eftir um þrjá cm, þá er ég búin. Geri ráð fyrir að geta þá notað kisu (coldgear) buxurnar mínar í gönguferðum líka. Gott að hylja botnin aðeins :o) Fyrir utan hvað ullin er hlý !
Later

Ummæli