Heyrði einu sinni sagt að börn heyra ekki það sem foreldrar þeirra segja því það sem foreldrar þeirra gera hljómar svo HÁTT.
Varð vitni að því áðan, og hef séð þetta áður, þegar móðir og barn hjóluðu að Leirutanganum og þurftu að komast yfir götuna. Við stoppuðum og biðum svo þau kæmust yfir. Hmmm, mamman lét krakkan fara af hjólinu og leiða það yfir götuna. Mjög rétt, best að hægja á þessum krílum áður en þau fara yfir götu svo þau átti sig betur ef það eru að koma bílar. EN MAMMAN? Hún fór ekkert af sínu hjóli - hún HJÓLAÐI YFIR GÖTUNA sjálf. Eru einhverjar líkur á því að þetta barn læri að best sé að leiða hjólið yfir götuna? - Ekki telur mamma þess best að leiða hjólið yfir götuna! Ég verð hissa ef þetta barn á ekki eftir hjóla þvert yfir án þess að líta til hægri né vinstri þegar mamman er ekki með til að skipa því af hjólinu.
Mér finnst þetta bera vott um tvískinnung hjá fullorðnum - kenna börnum eitt en framkvæma svo allt annað sjálf. Held að maður kenni börnum mest með því að gera sjálfur það sem maður predikar. Það þýðir ekkert að garga það bara nógu hátt og vona að það komist til skila.
Og ef einhver heldur að ég telji mig fullkomna í þessu þá er það hinn mesti misskilningur og það fyrsta sem kemur í hugann er að ég banna öllum að borða poppbaunir á meðan ég bryð þær sjálf... :o/
Annað sem maður þarf að hafa í huga er hvernig maður keyrir þegar maður á unglinga sem stefna hratt í að fá bílpróf. Það þýðir ekkert að vera í kappakstri á Vesturlandsveginum, blóta löggunni, fara tæpt yfir á rauðu og rífast við alla bílstjórana í kringum sig (sem heyra ekkert í þér hvort sem er). Tek það fram að ég er bara þokkalega slök þegar ég er að keyra og ég ætlast til að börnin mín læri það af mér og kunni það þegar þau fá bílpróf :o)
Later

Ummæli
Alexandra það er ekkert skrýtið að þú hafir viðurnefnið "alvitra" LoL