Fékk tölvupóst áðan frá Icelandair - það gerist reglulega og er því varla í frásögur færandi. Nema þá helst vegna þessa að þessi ferð sem þeir eru að auglýsa er SÉRFERÐ FYRIR MIG. Já já það er bara þannig - fyrir mig og mína líka.
Eina sem ég sá í þessu fréttabréfi þeirra var GLASGOW FYRIR FÓLK Á BESTA ALDRI. Sérsniðin ferð fyrir eldra fólk. Eigum við ekki aðeins að róa okkur - er ekki einu sinni orðin fertug.
Grunar að þetta sé nú bara svona almennt sent á alla, verð að vona það. En þeir ættu að vita að það er viðkvæmt fólk þarna úti. Fólk sem gæti hrokkið upp af við þá tilhugsun að vera komið á "besta" aldurinn.
Ef það hrekkur ekki í kút við þær fréttir að vera á besta aldrinum þá gerist það örugglega þegar það les verðið sem ferðirnar eru á. Nokkurra daga ferðir á hundrað þúsund og meira á manninn.
Oldie

Ummæli