Fara í aðalinnihald

Ekki flýta þér inn í eilífðina

Nú eiga nokkrar fjölskyldur á Suðurnesjunum ansi erfitt og ég finn óskaplega til með þeim. Ég óska þess heitt og innilega að stúlkan sem enn liggur sofandi á gjörgæslu nái sér að fullu. Kannski óraunhæft, ég veit það ekki. Ég finn líka mikið til með stráknum sem ók bílnum. Hann á sennilega aldrei nokkurn tíma eftir að jafna sig alveg eftir þetta hræðilega slys.

Ég ræði stundum við KEB um alls konar svona need to know things - m.a. bílpróf. Það er stutt síðan að við ræddum saman um bílstjóra og umferðina. Ég reyni að koma honum í skilning um að kjánalæti í umferðinni verða ekki aftur tekin þegar slysið er afstaðið. Hraðakstur getur verið dauðans alvara og það er ekki endilega bílstjórinn sem deyr. Örkuml eftir svona slys er ekkert grín. Og það er ekki endilega sá sem er með kjánalætin sem geldur fyrir vitleysuna. Það að lifa með afleiðingum gjörða sinna getur verið ansi erfitt, nánast óyfirstíganlegt. Við verðum að hafa það í huga þegar við erum pirruð út í samferðafólk okkar í umferðinni.

Ég óska þess svo innilega að börnin mín hlusti á mig varðandi þessi atriði. Það síðasta sem ég vil er að þau valdi svona slysum eða sitji í bíl þar sem bílstjórinn kann ekki með prófið að fara. Slys geta alltaf orðið, en við getum minnkað líkur á þeim með því að hegða okkur almennilega.

Mundi eftir ljóði sem ég las einhvern tímann - flestir hafa sjálfsagt lesið það en ég læt það flakka hérna samt:

Death of an Innocent

I went to a party, Mom,
I remembered what you said.
You told me not to drink, Mom,
So I drank soda instead.

I really felt proud inside, Mom,
The way you said I would.
I didn't drink and drive, Mom,
Even though the others said I should.

I know I did the right thing, Mom,
I know you are always right.
Now the party is finally ending, Mom,
As everyone is driving out of sight.

As I got into my car, Mom,
I knew I'd get home in one piece.
Because of the way you raised me,
So responsible and sweet.

I started to drive away, Mom,
But as I pulled out into the road,
The other car didn't see me, Mom,
And hit me like a load.

As I lay there on the pavement, Mom,
I hear the policeman say,
"The other guy is drunk," Mom,
And now I'm the one who will pay.

I'm lying here dying, Mom...
I wish you'd get here soon.
How could this happen to me, Mom?
My life just burst like a balloon.

There is blood all around me, Mom,
And most of it is mine.
I hear the medic say, Mom,
I'll die in a short time.

I just wanted to tell you, Mom,
I swear I didn't drink.
It was the others, Mom.
The others didn't think.

He was probably at the same party as I.
The only difference is, he drank
And I will die.

Why do people drink, Mom?
It can ruin your whole life.
I'm feeling sharp pains now.
Pains just like a knife.

The guy who hit me is walking, Mom,
And I don't think it's fair.
I'm lying here dying
And all he can do is stare.

Tell my brother not to cry, Mom.
Tell Daddy to be brave.
And when I go to heaven, Mom,
Put "Daddy's Girl" on my grave.

Someone should have told him, Mom,
Not to drink and drive.
If only they had told him, Mom,
I would still be alive.

My breath is getting shorter, Mom.
I'm becoming very scared.
Please don't cry for me, Mom.
When I needed you,
you were always there.

I have one last question, Mom.
Before I say good bye.
I didn't drink and drive,
So why am I the one to die?

Svo sá ég myndband á fésinu - hef sennilega aldrei séð svona "raunverulega" auglýsingu - ef hún nær ekki til fólks og fær það til að hugsa þá veit ég bara ekki hvað þarf til!

Sjáið þessa auglýsingu hérna

Svo hélt ég reyndar að það væri nánast innbyggt í ungt fólk í dag að nota öryggisbelti en það virðist ekki vera. Sá þessa auglýsingu um daginn líka og finnst hún alveg mögnuð!

Drive safely

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...