Fara í aðalinnihald

Hátt uppi

Við hjónin vorum hátt uppi í gær - BH aðeins hærra en ég samt. Okkur var boðið í Brunch í Turninum "á nítjándu" eins og ég held að staðurinn heiti. Hlynur og Ágústa buðu okkur og DH og HMS.

BH beilaði á okkur 30 mín áður en við áttum að mæta. Hann fékk boð sem ekki var hægt að hafna. Á meðan við sátum hátt uppi og átum á okkur gat í góðum félagsskap að njóta útsýnis yfir kópavog og Reykjavík þá flaug BH ásamt Óskari og tveimur öðrum yfir Eyjafjallajökul. Hann tók fullt af myndum af náttúruhamförunum úr lofti. Hann er búinn að skella myndunum á flickr síðuna sína svo hægt er að skoða þær þar. Þeir fóru varlega og reyndu að vekja ekki Kötlu.

Dálítið magnað að hægt sé að fljúga svo nærri gosinu réttu megin við það. Hinum megin situr öll Evrópa og blótar okkur í sand og ösku. Já svona eins og að við höfum bara skrúfað frá þessu til að pirra þau þarna hinum megin. Mátulegt á þau reyndar... he he, sorry en mér finnst þetta pínu fyndið þrátt fyrir hvað þetta er ömurlegt allt saman.

Ég vona svo innilega að þessu gosi ljúki fyrr en seinna - helst strax. Ég finn óskaplega til með fólkinu sem býr þar sem askan fellur, mest með skepnunum sem enga björg sér geta veitt. Finnst hálfnöturlegt að ekki skuli vera búið að ná í allar skepnur sem ganga úti og flytja þær annað. Mér er alveg saman þó að sagt er að það sé erfitt og lítið pláss annars staðar. Það hlýtur að vera hægt að þjappa vel í svona ástandi. Finnst að fólk eigi að hjálpast að - án þess að ætla að hagnast á því einhver ósköp.

Mér finnst líka hræðilegt að askan skuli hafa áhrif á sjúkraflug t.d. í Noregi þar sem talið er að einn hafi látið lífið því hann komst ekki nógu snemma undir læknishendur. En verð að viðurkenna samúðarleysi gagnvart fólki sem er á leið í brúðkaup eða afmæli eða frí eða á leið heim - veit að það er ömurlegt að hanga á flugvellinum en það fólk er heilbrigt og kemst á endanum þangað sem það ætlar.

Jú fjárhagslegt tjón er ekkert grín og öll þessi flugfélög verða í mesta basli, bæði fjárhagslega og að koma öllu flugi á rétta áætlun - en það hefst á endanum. Við verðum látin borga meira fyrir farið og þau taka vikuna í að rétta sig af með flugáætlanir. Fólk verður bara að sýna smá stillingu og þolinmæði - ekki okkar mannfólksins sterka hlið. En náttúran er ekkert að grínast þegar hún sýnir okkur tennurnar og lætur okkur vita hver í raun ræður á þessum hnetti þegar allt kemur til alls.

Svo veit ég ekki hvað fólk er að væla. Er ekki alltaf verið að tala um global warming? Það er talið að þetta gos muni lækka hitastig jarðar eitthvað - veit ekki hvernig en spekingarnir segja það.

En þetta er komið gott - þessu má gjarnan ljúka núna strax og vonandi að Katla sofi róleg áfram en rumski ekki. Þá fyrst erum við (og Evrópa og fleiri) í vondum málum.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...